Freyr - 15.07.1986, Page 18
sýningunni í Leipzig. Þar stóð að
fyrir hvert fenjabjórskinn þyrfti
þetta magn af fóðri.
Kornmeti 14,6 kg
Kornhýði .. 13,5 kg
Kartöflur . . 53,9 kg
Rófur 43,0 kg
Grænfóður .. 48,0 kg
Hey .. 3,6 kg
Steinefnablanda .... 0,8 kg
Fóðurger .. 1,0 kg
Ekki voru allir á eitt sáttir, því
að auka má eina tegund og
minnka aðra. Hér er tafla frá 1949
eftir Zanher um fóður á dag
handa dýri í geldstöðu.
Kartöflur ... 250gr.
Lusernumjöl .... 10 gr.
Hveitiklíð .... 30 gr.
Hafrahrat ... 20 gr.
í Póllandi eru stórbúgarðar með
bjór og er þessi fóðrunaraðferð
eftir Pingel frá 1972. Geldstöðu-
fóður:
Rófur ... 500gr.
Kartöflur ... 400 gr.
Kjarnfóður ... 50 gr.
Eftir 2—3 mánuði er líða fer á
meðgöngutímann er bætt við 25
gr. af heyi og 20 gr. af baunahrati.
Síðustu mánuði fyrir got er bætt
við 20—30 gr. af fóðurgeri. Heyið
sem ég sá fannst mér lélegt. Eins
og öll dýr þurfa þau eggjahvítu í
fóðri sínu. Dagleg þörf þeirra af
meltanlegu hrápróteini er:
Eins er þeim gefið steinefni.
Yfirleitt voru bændur með eitt
kvendýr í búri, en þó sá ég allt að
fimm kvendýrum saman, en þá er
best að þær gjóti á stuttum tíma,
þ. e. 2—3 dögum.
Þegar kvendýrum er haldið eru
þau látin í búrið til karlsins.
Gangmál er einn dag með 14—30
daga millibili. Eins er hægt að
halda þeim 1—3 dögum eftir got.
Á gangmáli verða kerlingarnar
órólegar, míga mikið og skeiðin
þrútnar. Karlarnir reka upp blístr-
andi hljóð, ef þeir eru í búri með
lóða kerlingu. Meðgöngurími er
128—132 dagar og þá fæðast ung-
amir þrælsprækir. í Austur-Þýska-
landi er landsmeðaltal um 6 ungar
í goti og seld skinn 11—12 á
kvendýr á ári. Skipting milli kynja
er jöfn í fæðingu.
Góðir ræktendur ná allt að 5
gotum á tveimur árum og fá þá frá
20 til 60 unga, eftir frjósemi. Best
töldu þeir fyrir byrjendur að hafa
mónóræktun það er 1 á móti 1 eða
tríóræktun það er 1 karl móti 2
kerlingum, en eins og áður sagði
eru þeir ytra með 1 á móti 5 til 1 á
móti 10. Stærri ræktendur hafa 1
karldýr á móti 20 kerlingum og þá
höfð saman í búri í 3 vikur, en eftir
það skipt niður í smærri einingar.
Þeir merkja dýrin með því að
klippa upp í sundfitin, bita og
sýlingar.
Eftir got mjólka kerlingarnar í
4—6 vikur. Mest verður mjólkin í
þeim á sjöunda degi og er þá um
160 gr. Venjulega er stíað frá þeim
eftir 4—9 vikur en þá verður að
gæta þess að aðskilja kynin í stíur.
Það er hægt að láta marga karla
saman og kerlingar (kynin ekki í
sama búr) samtímis, en ekki má
bæta í stíurnar seinna, því að þau
sem fyrir eru leggjast á þau ný-
komnu. Stéttarskipting er allsráð-
andi.
Allmörg litarafbrigði eru til af
fenjabjór. Brúnir (Standard),
(Grænlands) gráir, gulbleikir,
hvítir, svartir og fleiri. Núna er
hæst verð á gráum bjór eða um
35% hærra en í öðrum. Undir
þessum aðallitum eru til afbrigðin
Saphir Atomino, Platino og Bril-
◄ Brynning
◄ Málm rist
◄ Flór
3. Þessi búr eru með þaki og veggi á þrjár liliðar. Þar er ekki rennandi valn að staðaldri
en möguleiki á að láta dýrin baða sig. Þau eru mjög hreinlát og ganga örna sinna um
leið og þau drekka.
520 Freyr
Aldur í Þyngd Meltanlegt
mánuðum kg hráprótein g
2—3mánuðir .................. 1.6 kg 15,4 g
4—5 mánuðir ................. 2,6 kg 20,4 g
6— 7 mánuðir ................ 3,7 kg 25,2 g
7— 9 mánuðir .............. 4—4,5 kg 26,5 g