Freyr

Árgangur

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 29

Freyr - 15.07.1986, Blaðsíða 29
Auk heimilisstarfa vinna konur margvísleg störf við búskapinn. Þáttur kvenna í búrekstrinum er mjög mikilvægur. starfsmaður væri kallaður út, tvisvar á dag, IV2 til 2 tíma í senn, og það væri metið til launa 1 V2—2 tíma. Útkall hjá launafólki er aldrei metið minna en 4 tímar til launa. Þetta vanmat á vinnufram- lagi kvenna gerir það t.d. að verk- um að bændakonur eiga ekki rétt á nema 67% fæðingarorlofs. Til þess að fá fullt fæðingarorlof greitt, þurfa þær að sanna að þær hafi unnið 1032 stundir á ári við búið hið minnsta. Konur þurfa auðvitað sjálfar að fylgjast með því að störf þeirra séu ekki vanmetin og á rétt þeirra gengið, af þeim sökum. Það yrði til hagsbóta, ekki ein- ungis fyrir bændakonur, heldur einnig fyrir bændurna, því að ég tel að hagsmunir karla og kvenna í bændastétt séu svo samtvinnaðir, að allt sem telst til hagsbóta fyrir konurnar sé það einnig fyrir karla- na og öfugt. Nú mun vera unnið að endur- skoðun laga um fæðingarorlof á vegum heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytisins, og ég vona að útkoman úr þeirri endurskoðun verði sú, að réttur kvenna til fæð- ingarorlofs verði jafnaður, og konur ekki dregnar í dilka, eftir því hvað þær vinna, heldur að allar konur hafi sama rétt og fái sömu greiðslur í krónum talið. Máttur auglýsinganna. Ég ætla að venda mínu kvæði í kross, og minnast örlítið á þann vanda, sem nú steðjar að landbún- aðinum á alla vegu. Sumt af þess- um vanda má trúlega rekja til bændanna sjálfra og þeirra framá- manna. Það datt engum í hug að það þyrfti t.d. að auglýsa mjólk og mjólkurafurðir, það hlytu allir að þurfa á þessum vörum að halda og óþarfi væri að minna á hana. Svo vakna menn upp við vond- an draum. Allt í einu erum við að verða búin að ala upp heila kynslóð í landinu sem kann ekki að drekka mjólk, borðar ekki lambakjöt, og veit varla hvernig smjör lítur út, hvað þá hvernig það er á bragðið. Við verðum að átta okkur á því að máttur auglýs- inganna er mjög mkill, nú á fjöl- miðlaöld. Ég veit að auglýsingar- herferð kostar mkið, en ég hef trú á því að sá kostnaður skili sér aftur í aukinni sölu. Eins er nauðsynlegt fyrir framleiðendur hinna svo- kölluðu hefðbundnu búvara að gera sér grein fyrir breyttum þjóð- félagsháttum, og gera meira af því að aðlaga framleiðsluna að mark- aðnum. Á þetta aðallega við um dilkakjötið. Það þýðir ekki lengur að ætlast til að fólk kaupi dilka- kjöt í heilum og hálfum skrokkum í grisjupoka, eins og tíðkast hefur að geyma kjötið síðustu áratugi, þó að það sé kannski hagkvæmast peningalega séð. Fólk vill fá vör- una sem mest unna og að það þurfi sem minnstan tíma í að mat- reiða hana. Eins er það með þungu og feitu lömbin. Bændur hafa fram að þessu verið að fram- leiða sem þyngsta dilka, þótt það viti allir, sem vilja, að það eru 12—14 kg skrokkar sem fólk vill kaupa. Það kom fram í skýrslu for- manns, að nefnd sem hefur unnið að endurskoðun reglugerðar um kjötmat, hafi lokið störfum. Von- andi virka þessar nýju reglur um kjötmat, þegar þær líta dagsins ljós, hvetjandi á bændur, til að framleiða sem mest af dilkum í þessum meðaltals þyngdarflokki, (12—14 kg skrokka) og myndi lenging á sláturtíma auðvelda þetta í framkvæmd. Og svo þetta margfræga kjöt- fjall. Ég tel að það sé hæpinn hagn- aður að þessum útsölum á dilka- kjöti, sem gripið hefur verið til Freyr 581

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.