Freyr - 15.07.1986, Page 35
Stéttarsamband bænda
Verkamannasamband íslands
Launataxti fyrir
ráðskonur á sveitaheimilum
Samkomulag til bráðabirgða.
Grunnlaun á viku (20. fl. eftir 7 ár) miðað við að í heimili séu 1—3 auk
ráðskonu og þeirra sem henni fylgja.
40 stundirákr. 121.47 .................................... 4 859,00
Álag v/yfirvinnu og vinnu um helgar 60%................... 2 915,00
7 774,00
Orlof 10,17% .......................................... 791,00
8 565,00
Fæði og húsnæði á viku 7 x 480 ......................... 3 360,00
5 205,00
Mánuður:
Vika 52:12 ........................................... 22 555,00
f>ar sem fleiri en 3 eru í heimili auk ráðskonu og þeirra sem henni fylgja
hækkar álagsgreiðsla í 70%.
Frádráttur v/eins barns á dag.......................... kr. 220,00
Frádráttur v/tveggja barna á dag....................... kr. 353,00
Frádráttur v/þriggja barna á dag....................... kr. 486,00
Frádráttur miðast við börn á aldrinum 0—12 ára
Iðgjald í Lífeyrissjóð vika mán.
Iðgjald launþega4% .............. kr. 194,00 kr. 842,00
Iðgjald launagreiðanda 6% ....... kr. 291,00 kr. 1 263,00
Taxtinn miðast við að unnið sé alla laugardaga og sinnt matseld og öðrum
nauðsynlegum heimilisstörfum á sunnudögum. Ráðskonan á rétt á fjórum
frídögum í mánuði, þar af a. m. k. einu sinni um helgi.
Samkomulag þetta gildir til 1. janúar 1987.
Fastur þáttur...
Frh. af bls. 584.
hreppi og auk þessarar aðstöðu á
stofnunin innhlaup í góðri sam-
vinnu við Bændaskólana að
Hvanneyri og að Hólum, Garð-
yrkjuskóla ríkisins Reykjum í Ölf-
usi og Landgræðslu ríkisins að
Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Fastráðnir starfsmenn stofnun-
arinnar eru 53 en auk þeirra eru
nokkrir ráðnir tímabundið í sér-
stök verkefni.
Forstjóri Rala er nú Þorsteinn
Tómasson, plöntukynbótafræð-
ingur að mennt, en forverar hans í
starfi voru dr. Halldór Pálsson
(Búnaðardeild atvinnudeildar Há-
skóla íslands), Pétur Gunnarsson,
dr. Björn Sigurbjörnsson (nú for-
stjóri við Alþjóða Kjarnorku-
málastofnunina í Vín) og dr.
Gunnar Ólafsson.
Þorsteinn Tómasson
Almenn lýsing á
störfum ráðskvenna
á sveitaheimilum
1. Ráðskona skal annast matseld.
Gert er ráð fyrir fjórum máltíð-
um á dag, morgunmat, hádeg-
ismat, síðdegiskaffi og kvöld-
mat. Hún skal auk þess annast
veitingar fyrir gesti þegar þörf
krefur.
2. Ráðskona annast innkaup til
heimilis nema um annað sé
samið. Hún skal eftir því sem
aðstæður leyfa útbúa (vinna)
matföng til heimilisins nema
öðruvísi sé um samið.
3. Ráðskona annast almenna til-
tekt í íbúðarhúsi svo og þvotta
og frágang hans. Hún skal
einnig halda umhverfi íbúðar-
húss þrifalegu og annast skrúð-
garð sé hann til staðar, nema
öðruvísi sé um samið.
4. Ráðskona skal nema öðruvísi
sé um samið vera reiðubúin að
aðstoða við útistörf svo sem
gegningar og á sérstökum
álagstímum svo sem um
sauðburð, heyannir og við fjár-
rag eftir því sem aðstæður
leyfa. 24 júní 1986
Yfirborðsefni.
Frh. af bls. 585.
því lengur án þess að leggja þurfi í
kostnaðarsamar viðgerðir. Þá
aukast einnig líkur á því að heyið
verkist betur, bæði vegna þess að
geymslurnar verða þéttari og hey-
ið fellur betur saman. Auk þess er
líklegt að auðveldara sé að þrífa
geymslurnar og þær verði vistlegri
vinnustaður. „
Gretar Einarsson.
Freyr 587