Freyr

Volume

Freyr - 15.07.1986, Page 38

Freyr - 15.07.1986, Page 38
Óttar Geirsson, jarðræktarráðunautur \ Belgjurtir Frá fundi á Rannsóknastofnun landbúnaðarins Ahugi á rœktun belgjurta var verulegur hér á landi á fjórða og fimmta tug þessarar aldar. Síðan dvínaði hann og rœktun belgjurta féll niður. Nú er áhugi á belgjurtaræktun að vakna á ný. Óttar Geirsson. Hér er um ofureðlilega þróun að ræða. Upp úr síðari heimstyrjöld var tilbúinn áburður tiltölulega ódýr, en skortur var á búvöru. Hann starfaði að mestu af fóð- urskorti. Nýræktir túna voru því miklar og mikið notað af tilbúnum áburði. Menn veltu ekki mikið fyrir sér, hvernig framleiða mætti búvöru sem ódýrast heldur eink- um hvernig framleiða mætti sem mest. Belgjurtir falla ekki að slík- um búskaparháttum. En nú er ekki lengur keppikefli að fram- leiða sem mest heldur að fram- leiða sem ódýrast. Tún eru nú víða meira en nógu stór til að fullnægja heyþörf búsins og sums staðar hentar vel að nota hluta túnanna sem ræktað beitiland. Við beitar- ræktun henta belgjurtir, t. d. hvítsmári, mjög vel. Hinn 18. apríl síðastliðinn var efnt til málfundar á Rannsókna- stofnun landbúnaðarins á Keldna- holti, þar sem rætt var um belg- jurtir í íslenskum landbúnaði. Rifjaðar voru upp niðurstöður ýmissa þeirra tilrauna, sem hér voru gerðar á belgjurtum áður fyrr, rætt um kynbætur á belgjurt- um, ýmsa eiginleika þeirra, rækt- un og notkun. Það var einkum alaskalúpína til uppgræðslu á örfoka landi svo og hvítsmári og fóðurlúpínur, sem rætt var um. Þessar belgjurtir koma helst til greina sem beitar- plöntur hér á landi, en síður til heyöflunar. Alaskalúpína hefur þó þann galla sem beitarjurt að eiturefni, alkalóiðar, finnast í henni og rýra hana til beitar. Það kom fram á fundinum að munur að þessu leyti milli einstakra plantna er mikill og efalaust má rækta efnin úr henni með úrvali og kynbótum. Þar sem lúpína nær fótfestu utan girðinga, er hún jafnóðum bitin af sauðfé. En þar sem mikið er um lúpínu, virðist fé velja þær bestu til beitar, en láta aðrar í friði, a. m. k. ef nóg er af öðru að taka. Vegna þess hve langt er um lið- ið frá því er tilraunir með belgjurt- ir voru gerðar hér á landi, er lítið vitað hvernig þeir stofnar sem nú fæst fræ af, reynast hér á landi. Þó er líklegt, að stofnar, sem reynst hafa vel í norðanverðri Skandi- navíu, reynist einnig vel hér. Smárastofnar eru mjög háðir um- hverfi því sem þeir eru runnir úr, t. d. jarðvegi. Sænski stofninn Undrom er talinn líklegastur þeirra hvítsmárastofna sem nú eru á markaði, til að reynast vel hér á landi. Þessi erindi voru flutt á fund- inum. Andrés Arnalds: Jónatan Hermannsson: Aslaug Helgadóttir: Þorsteinn Tómasson: Jón Guðmundsson: Friðrik Pálmason: Halldór Sverrisson: Valgeir Bjarnason: Olafur Guðmundsson: Kristján Oddsson: Belgjurtir til uppgræðslu. Fyrri rannsóknir á belgjurtum hér á landi. Hvítsmári - erfðabreytileiki og kynbætur. Kynbætur á lúpínu. Sáningaraðferðir án jarðvinnslu. N-nárn úr lofti í rótarhnýðum fóðurlúpína. Tæknileg atriði varðandi Rhizobium. Nýting belgjurta. Fóðurgildi belgjurta. Hvítsmáraræktun, séð frá sjónarhóli bónda.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.