Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 9
10.'92
FREYR 393
Frá Vík í Mýrdal.
Hér eru menn gerendur
en ekki aðeins þiggjendur
Viðtal við Benedikt Sigurbjörnsson, átaksverkefnisstjóra f Vfk f
Mýrdal
/ mars sl. slóst fréttamaður Freys í för með Arnaldi Bjarnasyni atvinnumálafulltrúa
austur í Mýrdal, einkum til að hitta að máli Benedikt Sigurbjörnsson átaksverkefnis-
stjóra í Vík í Mýrdal.
Benedikt er ungur að árum, alinn
upp í Reykjavík og nágranna-
byggðarlögum og lauk prófi í véla-
verkfræði frá Háskóla íslands
haustið 1991. Ástæða þess að hann
starfar nú í Vík er að kona hans,
Guðrún Kristjánsdóttir, var ráðin
þangað sem kennari og nokkru
seinna var staða átaksverkefnis-
stjóra í Vík auglýst laus til umsókn-
ar og fékk Benedikt starfið.
Ég spyr Benedikt hvenœr hann
hafi tekið við starfinu?
Ég hóf formlega störf seinni
hlutann í maí 1991. Átaksverkefn-
ið fór hins vegar af stað í mars.
Hver fjármagnar verkefnið?
Frumkvæðið að verkefninu
kemur frá heimamönnum, þ.e. at-
vinnumálanefnd Mýrdalshrepps.
Hún hafði fylgst með því að sam-
bærileg verkefni voru í gangi ann-
ars staðar á landinu og leitaði þar
að fyrirmyndum. Á bak við allt
þetta lá svo það að atvinnuástand á
svæðinu var ekki nógu gott.
Þeir sem fjármagna verkefnið
eru Byggðastofnun, með tæplega
helming kostnaðar, Mýrdals-
hreppur, Búnaðarbankinn og
Landsbankinn í Vík, Atvinnuþró-
unarsjóður Suðurlands, Kaupfélag
Árnesinga og Verkalýðsfélagið í
Vík.
Hvert var svo fyrsta verk þitt í
starfi?
Ég var ráðinn til starfsins 15.
mars 1991 og daginn eftir var svo-
kölluð leitarráðstefna, sem m.a.