Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 10

Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 10
394 FREYR 10.’92 stjórn Átaksverkefnisins, atvinnu- málanefnd, og sveitarstjóri, Haf- steinn Jóhannesson, höföu undir- búið. Á leitarráðstefnunni, 16. mars, var ég fyrst og fremst áheyr- andi og að kynnast fólkinu. Á svæði Mýrdalshrepps, sem varð til við sameiningu Hvammshrepps og Dýrhólahrepps árið 1984, hefur fólki verið að fækka undanfarna tvo áratugi a.m.k. Atvinnutæki- færi eru þar fá og tiltölulega ein- hæf, tæplega fjórðungur starfa er í landbúnaði, en auk þess er smá- iðnaður í Vík, verslun, þjónusta og verktakastarfsemi í nokkrum mæli. Hvernig tókst leitarráðstefnan? Það var upplýst að áður hefðu verið haldnar tvær slíkar leitarráð- stefnur á landinu. Á ráðstefnu í Vík 16. mars 1991 komu rúmlega 60 manns og, þar skoðuðu menn fortíð og nútíð og veltu fyrir sér framtíðinni. Niðurstaðan var mjög jákvæð, það voru myndaðir verk- efnahópar sem eru kjölfestan í því að koma hugmyndunum áleiðis og í framkvæmd. Síðan er nýlega haldin önnur ráðstefna til að kanna stöðuna? Já, verkefnið á að starfa í eitt og hálft til tvö ár og hluti af því er að Benedikt Sigurbjörnsson. halda endurmatsráðstefnu þar sem farið er yfir það sem búið er að gera, sumir vinnuhópar lagðir nið- ur, aðrir endurskipulagðir og nýjar hugmyndir teknar inn. Þessi ráð- stefna var haldin 11. janúar sl. Hvernig var hljóðið þó í mönn- um? Það var mjög gott. Þeir hópar sem mest lá eftir voru hópar sem unnu að ferðaþjónustu. Á vegum eins hóps hafði verið stofnað til upplýsingamiðstöðvar sem hafði aðsetur í Víkurskála og starfaði í tvo mánuði sumarið 1991. Hópur- inn gaf út bækling með upplýsing- um um þetta svæði sem dreift var til ferðamanna. Þá má nefna hóp sem tók sér fyrir hendur að merkja gönguleiðir víða í Mýrdalnum. Það verk tókst með ágætum. Einn hópur fjallaði um fiskrækt og á vegum hans var stofnað Fisk- ræktarfélag Mýrdals 8. desember 1991. Hér hefur verið og er stund- uð hafbeit frá Dyrhólaósi, auk þess sem rekin hefur verið seiðaeldis- stöð í Vík á annan áratug. Eftir að Fiskræktarfélagið kom til sögunn- ar hefur einn bóndi, Jónas Er- lendsson í Fagradal, komið á fót fiskeldi heima hjá sér með bleikju, auk þess sem hann hefur komið á fót aðstöðu til reykingar og pökk- unar á fiskinum. Þá má nefna að aukin nýting á silungi í vötnum á svæðinu hefur verið á dagskrá hjá þessum vinnu- hópi. I Vík er einkaaðili, Paul Richardson, að gera golfvöll, sem er ekki fullbúinn ennþá. í tengsl- um við þá framkvæmd er hug- myndin að stofna golfklúbb. Einn hópur starfaði um skíða-, og úti- vistarsvæðið á Mýrdalsjökli, þar sem farið er upp frá Sólheimum í Þórir Kjartansson forstjóri Víkurprjóns hf. hefur umsjón með Eldisstöðinni í Vík sem klekur út seiðum af laxi, sjóbirtingi og bleikju. Á myndinni til vinstri er útbúnaðursem sér um sjálfvirka fóðrunáseiðunum. Þennan útbúnað bjó Þórir til og notaði í hann hluti úr gömlu flugvélarflaki.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.