Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 13
10.’92
FREYR 397
Ingibjörg að gefa hœnsnunum. í þessum hópi eru hœnsn bœði afíslensku og
ítölsku kyni. Ingibjörg segir að íslensku hœnsnin séu auðþekkt frá hinum áþví
að þau séu öðruvísi í vexti og heldur smærri en ítalarnir.
að vera á sama tíma í sveitinni og
næsta nágrenni seldu þær fyrir álit-
lega upphæð. Allmargar konur í
Fljótum koma nú saman á þriðju-
dögum í hverri viku og eiga góðar
stundir við handiðnir og samveru í
gömlu skólahúsi sem hreppsnefnd-
in lét þeim í té til þess að þeirra
ósk.
Ingibjörg segir: Við stefnum að
því að hafa munamarkað þrjá daga
í viku í allt sumar í nýja grunnskól-
anum í Fljótum og tvær konur
hyggjast selja þar kaffi og meðlæti.
J.J.D.
Þurrkar hrjá
„kornforðabúr" Afrfku
Alvarlegir þurrkar í Transvaal
valda því að Suður-Afríka verður
nú að flytja inn korn til að sjá
þjóðinni fyrir mat. Sjálfkjörið
kornforðabúr sunnanverðrar Afr-
íku, vestari hluti Transvaal, var
áður efnaðasta landbúnaðarsvæði í
allri Suður-Afríku.
Suður-Afríka, sem að jafnaði
hefur flutt út korn, er þar með
komið í hóp fleiri landa á þessum
slóðum sem hrjáð eru af þurrki.
Það á við um svæðið frá Sudan og
Zimbabwe suður til Madagaskar.
I Suður-Afríku verður maísupp-
skeran í ár tveimur milljón tonnum
undir þörfum. Uppskeran er áætl-
uð 5 milljón tonn sem er það lægsta
sem hún hefur orðið í hálfa öld.
Þetta vekur enn á ný spurningar
um það hvort vandamál vegna of-
framleiðslu á korni fari senn að
snúast í andhverfu sína.
(Bondebladet, 11/3 1992)
EIGUM MIKIÐ ÚRVAL HJÓLBARÐA UNDIR
ALL.AR GERÐIR ÖKUTÆKJA. HAGSTÆTT VERÐ
GÚMMÍVINNSLAN HF.
Réttarhvammi 1 - Akureyri - Sími 96-26776
■ ' ■ ■ ■ i i i i » i r~m i i i i i ~H