Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 36

Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 36
420 FREYR 10.’92 Girðingar og hlið Helgi Þórðarson, Ljósalandi, Vopnafirði Fyrr á þessum vetri sendi Helgi Þórðarson á Ljósalandi í Vopna- firði Bjarna E. Guðleifssyni á Möðruvöllum bréf og myndir um girðingar og hiið. Tiiefnið var skrif Bjarna um girðingar fyrir nokkrum árum. Með leyfi Helga sendi Bjarni bréfið og myndirnar áfram til Freys, ef blaðið teldi efniö eiga erindi til lesenda sinna. Hér reyndist hið athyglisverðasta og þarfasta efni á ferð og fylgir bréfið hér á eftir, en sleppt er inngangi og niðurlagi. Kann blaðið þeim Helga og Bjarna þakkir fyrir. „Fyrir um það bil 35-40 árum hafði ég girt nokkuð stóra fjárgirðingu, einkum til nota vor og haust. Á sama tíma, og raunar lengi síðan, var ég á sífelldum flótta með tún- girðinguna undan skurðgröfum og öðru bjástri við nýræktir. Af þessu leiddi að sjálf túngirð- ingin var orðin hálfgert ræksni. Þegar það bættist við að hún Iá víðast hvar á þýfðum kanti utan nýræktanna og hlaðið var undir hana í lautum, reyndist það kjörin aðstaða fyrir kindur að smjúga undir. Eða eins og einn nágranni minn sagði: „Komi þær snoppunni undir neðsta vírinn, fara þær í gegn“. Ég færði því girðinguna inn á slétt túnið og bar heldur ekki við að endurnýja fjárgirðinguna fyrr en ég hafði sléttað undir línuna 3-4 m ræmu og sáð í hana grasfræi. Við gömlu girðinguna studdist ég að einhverju leyti við prentaðar leiðbeiningar. Muni ég rétt var þar ráðlagt að ganga frá hornum á þann veg, að reka niður hornstaur- inn og u.þb.b. 1,5 m frá honum aukastaur báðu megin, með réttri stefnu í línurnar sem hornið sker. Þessa þrjá staura átti svo að tengja saman með slá að ofan og neðan og skástífa. Þetta reyndist þolanlega ef hornið var rétt eða krappara, en Hlið á heimreið á Ljósalandi (Myndir tók Svanur Karlsson). Túnhlið viðfjárhús.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.