Freyr - 15.05.1992, Blaðsíða 11
10.’92
FREYR 395
Jónas Erlendsson t Fagradal hefur komið upp fiskeldi á jörð sinni. Bœjarlœkurinn knýr fyrst rafstöð á jörðinni og er
síðan notað til fiskeldisins. Jónas hefur eigin útbúnað við að leiða vatn úr kerjunutn eftir notkun. Pessi útbúnaður er
sýndur á myndinni til hœgri.
Mýrdal. Fyrir skömmu var svo frá-
genginn samningur milli Snjó-
sleðaferða hf. og heimamanna um
snjósleðaferðir og rekstur á skíða-
lyftu á Mýrdalsjökli. Þá má nefna
hóp um rekstur sumarbúða, hóp
um minjagripaframleiðslu og hóp
um aukið samstarf fyrirtækja
Fyrir utan þessi verkefni, sem
hafa þróast jákvætt, eru svo önnur
sem ekki miðaði eins vel, a.m.k.
að sinni.
Eftir endurmatsráðstefnuna
komust nýir hópar á legg, m.a.
einn til að kanna möguleika í opin-
berri þjónustu, þ.e. lögbundinni
þjónustu sem nú er ekki sinnt, t.d.
brunaeftirliti eða öðru, sem tengja
má því sem fyrir er.
Þá má nefna hóp um landbúnað,
sem erm.a. að skoða hagræðingar-
möguleika, umhverfismál, úr-
vinnslumöguleika og fræðslu.
Þetta er vítt svið þar sem menn eru
að velta fyrir sér hugmyndum sem
of snemmt er að kynna.
Yfir heildina litið er óhætt að
segja að stofnun Ataksverkefnisins
hafi aukið mönnumbjartsýni. Auk
þess sem starfshóparnir hafa unnið
gott verk, þá hafa fyrirtækin á
svæðinu leitað til okkar í auknum
Helga Jónsdóttir og Sigurjón Mýrdal
reka bú á Ketilsstöðum í Mýrdal, en
Sigurjórt er þaðan. Þau eiga hins
vegar heimili á Steig þar sem Helga
prjóttar flíkur með fjölbreyttu
mynstri á tölvustýrða prjónavél. Pau
fluttu austur í Mýrdal fyrir tveimur
árum en áður unnu þau bœði hjá
Rafmagnsveitum Reykjavíkur, hún
sem tœkniteiknari en hann sem raf-
magnsverkfrœðingur. Pau hafa kom-
ið sér upp vönduðum tölvubúnaði og
litprentara þar sem framleiða má
margs konar gögn, svo sem auglýs-
ingar, kennslugögn, m.a. glœrur,
o.fl.
mæli, bæði um aðstoð við fram-
leiðsluna og markaðssetningu.
Hafið þið úr einhverjum f jármun-
um að spila til að styðja þessi
verkefni?
Nei, en við getum keypt sér-
fræðiaðstoð fyrir hópana, svo sem
fýrirlesara, en aðra fjárhagsaðstoð
getum við ekki veitt. Þeim er í
þeim efnum vísað á Framleiðni-
sjóð, Smáverkefnasjóð og aðra að-
ila. Við veitum þeim hins vegar
aðstoð við umsóknirnar.
Þú nefndir að fóiki haf i fœkkað á
svœðinu, en er þá laust jarð-
nœði?
Nei, sáralítið, það kemur maður
í manns stað þegar jarðir losna. í
Vík er heldur ekki teljandi á lausu
af húsnæði.
Aldurssamsetning íbúa gefur til
kynna að meðalaldur hér sé hærri
en yfir landið í heild. E.t.v. má
rekja það til dvalarheimilis fyrir
aldraða sem staðsett er í sveitarfé-
laginu.
Fjöldi barna á grunnskólaaldri
er undir landsmeðaltali en nokkuð
fjölmennir árgangar eru á for-
Frh. á bls. 425.