Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1992, Page 34

Freyr - 15.05.1992, Page 34
418 FREYR 10.'92 Vikugamlir œðarungar. (Ljósm. Á.G.P.). Æöarhreiðtir viö rekadrumba á Oddsstaöaeyjum. Myndin er tekin 17. maí 1991. (Ljósm. Kristbjörg Árnadóttir). Ungar, sex vikna, heima á hlaði við Oddsstaði. (Ljósm. A.G.P.). Umönnun, uppeldi og fóðrun ung- anna var mjög á sama hátt og 1990. Þeir voru inni í eldhúsi fyrsta sólar- hringinn til að venjast umgengni manna. Þá fluttir út í stíu og fyrstu vikuna í pössun í frjálsræði úti við en um nætur hýstir í stíu. Fóðrið var sambærilegt og árið áður, kjúk- lingafóður, varpkögglar og seiða- fóður og til öryggis gefið smávegis fóðurger og alhliða vítamínblanda. I byrjun voru gefnir tveir hlutar Ungi I á móti einum hluta seiða- fóðurs, en þegar þeir voru átta daga gamlir var byrjað að gefa með Unga II og hlutföll þá 1:1:1, þegar ungar voru 1/2 mánaðar gamlir var búið að skipta Unga I út á móti varpkögglum, en hlutföll 3ja fóð- urtegunda þau sömu 1:1:1. Ungar undu sér strax vel og höfðu góða framför og þroska. Stélmyndum var hafin hjá jDeim 14 daga gömlum, og vængfjaðra viku síðar. Þegar ungarnir voru 15-16 daga gamlir undu þeir ekki lengur að vera lokaðir inni í stíu um nætur og fengu frjálsræði úr því. Þeir gátu þá leitað eftir afdrepi í stíu og þar lá frammi fóður og vatn og eins undir pallbíl sem stóð þar á hlað- inu. En flestar nætur Iágu þeir að mestu niðri við vatn. Ungar urðu seinna vatnsþolnir á þessu vori en oft áður og voru ekki fúsir að fara á vatn í byrjun. Fyrir því sama vottaði á síðasta ári. Má vera að seiðafóðurgjöf hafi þar eitthvað að segja. Hef fengið sömu tilgátur frá öðrum uppalanda. Fóðurgjöf hjá ungunum 3ja vikna gömlum var 1:1 af varpkögglum og Unga II á móti 2 af seiðafóðri, og frá 9 vikna aldri til helminga varp- kögglar og seiðafóður. Hinn 10. júlí voru 44 ungar merktir á hægri fót með nr. 239-650 og frá 244-201 til 244-243. Ungarnir urðu hvumpnir við merkingarumstang- ið og treystu mér ekki að fullu fyrr en undir hádegi daginn eftir. Þeir voru tortryggnir fyrst um morgun- inn, héldu mig enn vera haldinn satistaeðli eins og þeir höfðu reynt við merkingu daginn áður. Ungar döfnuðu vel en voru í þörf fyrir að

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.