Freyr - 15.05.1992, Side 43
10.'92
FREYR 427
Hvernig er neysluvatnið hjá þér?
Bora eftir vatni, dæluprófa
og aðstoöa við virkjun á borholum.
Ný og lipur tæki, áralöng reynsla.
t Heitt og kalt vatn.
t Ferskur sjór.
| Rannsóknar- og kjarnaboranir.
| Dæluprófanir.
t Verkfræðiþjónusta.
Alvarr hf.
Friðfinnur K. Daníelsson
verkfræðingur
Sími 91-612460
Endurskoðun laga um
skógrœkt
Kynnt var uppkast að bréfi til land-
búnaðarráðherra þar sem hvatt er
til endurskoðunar á lögum um
skógrækt nr. 3/1955 með síðari
breytingum. Bréfið fylgir hér á
eftir:
„í framhaldi af undirritun nýs
búvörusamnings 11. mars 1991
(bókun VI) hefur komið fram vax-
andi áhugi meðal bænda á skóg-
rækt sem lið í almennum búrekstri.
Stjórn Stéttarsambandsins telur
mikilvægt að þessum þætti bú-
rekstrar sé þegar í upphafi skapað-
ur rammi þannig að hann falli sem
best að öðrum þáttum búrekstrar
og tengist um leið öðru skógrækt-
arstarfi í landinu.
I þessu sambandi telur Stéttar-
sambandið nauðsynlegt að taka til
endurskoðunar lög nr. 3 frá 6.
mars 1955 um skógrækt, meðal
annars með tilliti til þess að ætla
má að nytjaskógrækt geti á næstu
árum orðið gidlur þáttur í skóg-
ræktarstarfi hérlendis.
Stjórn Stéttarsambands bænda
telur mikilvægt að vinna við endur-
skoðun laganna geti hafist sem
fyrst og óskar eftir því að samráð
verði haft við Stéttarsambandið
um það verk.“
Æðarbúskapur á Vatnsenda
1991.
Frh. afbls. 417.
Vanhöld
Að venju var ungum gefið silungs-
slóg í Fremravatn á Vatnsenda til
að venja þá við fæðuöflun og köf-
un. Þeir virðast ekki vera í eins
mikilli þörf fyrir fiskmeti, síðan ég
fór að gefa seiðafóður. Innyfla-
ormar voru miklir í sumum silungi
á Vatnsenda að þessu sinni. í and-
varaleysi áttaði ég mig ekki á að
það gæti verið hættulegt fyrir ung-
ana. í ágústmánuði fundust tveir
ungar dauðir, annar 244-224, leit-
aði heim að Vatnsenda, hinn 244-
242 fannst við Oddsstaðalón.
Krufningin að Keldum leiddi í ljós
að dánarorsök á þeim fyrrnefnda
var bandormasýking en hinn hafði
orðið fyrir skoti. Ég mun ekki oftar
gefa ungum mínum silungsslóg,
heldur flaka í þá fiskinn sjálfan.
Reynsla þessa uppeldis undir-
strikar að afgerandi er að ungarnir
geti treyst leiðsögn uppalanda allt
til loka. Þá er uppeldið auðveldast
og framförin best.
Ég þakka öllum er veittu marg-
háttaða aðstoð við uppeldi ung-
anna að þessu sinni, og alveg sér-
staklega Silfurstjörnunni hf. í Öx-
arfirði, sem gaf allt seiðafóður.
Árni G. Pétursson er œðarbóndi á
Vatnsenda á Melrakkaslétlu og fyrrver-
andi sauðfjárrœktar- og hlunnindaráðu-
nautur BÍ.