Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1992, Page 47

Freyr - 15.05.1992, Page 47
FRÁ STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1993 þurfa að berast Stofnlánadeild landbúnaðarins fyrir 15. september næstkom- andi. Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmd- inni, þar sem meðal annars er tilgreind stærð og byggingarefni. Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar og veðbókar- vottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til fimm ára og koma þarf fram hverjir væntanlegir fjármögnunarmöguleikar um- sækjanda eru. Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1993 þurfa að senda inn umsóknir fyrir 31. desember nk. Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk. Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána þó að framkvæmdir séu hafnar áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir. Sérstök athygli er vakin á því að Stofnlánadeild landbúnaðarins er óheirnilt lögum samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántakendum er sérstaklega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá lífeyrissjóðum öðrum en Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð. Umsóknareyðublöð fást hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins, útibúum Búnaðarbanka íslands og búnaðarsamböndum. STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS, Laugavegi 120,105 Reykjavík.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.