Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.1999, Blaðsíða 18

Freyr - 15.04.1999, Blaðsíða 18
Afkvæmadómur nauta Nautin á Nautastöðinni sem fædd voru árið 1992 essari grein er ætlað að gera grein fyrir ýmsum helstu nið- urstöðum sem fram komu við afkvæmarannsóknir á dætrum nauta Nautastöðvar BÍ sem fædd voru árið 1992. Þessi árgangur nauta taldi 23 naut og voru þetta þrír hálfbræðrahópar. Þar voru fimm synir Sopa 84004, tíu synir Þistils 84013 og átta synir Belgs 84036. Ef riQað er upp hvaða grunnur upplýsinga er fyrir hendi til að framkvæma afkvæmadóm naut- anna þá er það í meginatriðum eftir- farandi: Mikilvægustu upplýsingamar og undirstöðuna verður að sækja í skýrsluhald nautgriparæktarinnar. Það á við um allar upplýsingar um ættemi gripa, afurðaupplýsingar, bæði um mjólkurmagn og gæði (efnainnihald mjólkur). Þaðan em einnig sóttar upplýsingar um frumutölu í mjólk hjá þessum kúm, auk upplýsinga um fijósemi þeirra. Þá fer ffam skipuleg skoðun á dætmm þessara nauta. Þær em þar dæmdar samkvæmt samræmdum dómstiga sem notaður hefiir verið óbreyttur nokkuð á annan áratug. Fyrir nokkmm árum var sú upplýs- ingaöflun hins vegar vemlega aukin með þvi að taka upp það sem kallað er linulegt mat gripanna, sem í raun eftir Jón Viðar Jónmundsson Bænda- samtökum m íslands er tiltölulega nákvæm lýsing á hveijum einstökum grip á töluformi fyrir alla mikilvægustu þættina. A þennan hátt er aflað upplýsinga um útlitseinkenni (lit og hom), auk þess sem byggingarlag kúnna er metið. Þar er metin skrokkbygging, auk þess sem megináhersla er lögð á dóma um júgur- og spenagerð kúnna. Einnig er aflað upplýsinga frá umráðaðilum gripanna um um- gengnisþætti; mjaltir og skap. Stefht hefur verið að því á siðustu árum að auka umfang þessarar upplýs- ingaöflunar. Það er í raun eina vem- lega virka leiðin sem fyrir hendi er til að auka vægi þessara þátta í rækt- unarstarfínu. Þessi skoðun hefur verið framkvæmd mjög víða um land á síðustu tveimur árum. Þær kýr sem em í þessum afkvæmahóp- um hafa allar verið skoðaðar á tveimur síðustu árum. Þannig er umfang skoðunar nú meira en nokkm sinni áður og hafa verið skoðaðar samtals 1093 kýr eða að meðaltali rúmlega 47 kýr undan hverju nauti. Flestar dætur í skoðun átti Þokki 92001, 63 kýr, en Skuggi 92025 fæstar eða samtals 35 kýr. Þriðja uppspretta upplýsinga fyrir afkvæmarannsóknina er mjalta- athugun. Þetta er staðlaður spum- ingalisti sem sendur er til allra skýrsluhaldara sem eiga dætur þessara nauta. Þar em þeir beðnir að raða innbyrðis fimm kúm í einu með tilliti til mjalta og gæða. Sú gæðaröð sem þama er fengin er að sjálfsögðu ákaflega óskilgreindur eiginleiki en er áreiðanlega mæli- kvarði um hvemig umsjónarmanni fellur við viðkomandi grip. Þess vegna er ástæða til að taka sem við- vömnarmerki ef ekki falla saman þær tölulegu upplýsingar sem em fyrir hendi og gæðaröð kúnna. Samræmi þar á milli er samt alla jafnan mjög gott. Auk mjaltaraðar er spurt um ýmsa algengustu mjaltagalla, sem einnig hljóta að veita vemlegar upplýsingar. Þá er á þessum spumingalista aflað upp- lýsinga um skapgalla hjá kúnum og einnig um júgurbólgu. Útlitseinkenni Einkenni á flestum nautum í þessum árgangi er að þau gefa mjög mikið af einlitum kúm, aðeins Galmar 92005 átti hátt hlutfall tví- 18- FREYR 4/99 Mynd 2. Skuggi 92025.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.