Freyr - 15.04.1999, Blaðsíða 30
Sjálfvirkur
mjaltabúnaður sem virkar
Inngangur
Á allra síðustu árum hefur þróun
við gerð alsjálfvirks mjaltabúnaðar
verið mjög hröð. Tækninni hefur
fleytt fram og það tók langan tíma
að leysa öll þau vandamál sem upp
komu við notkun slíkrar hátækni.
Einnig höfðu margir efasemdir um
að slíkar aðferðir væru siðfræðilega
réttar og atriði eins og eftirlit með
mjólkurgæðum voru talin ófúll-
nægjandi í byrjun. Slíkar efasemd-
arraddir virka harla hjáróma í dag
vegna þess að það er búið að leysa
í stórum dráttum flest þau vanda-
mál og vafaatriði sem uppi voru.
Skoðunar- og kynnisferð
Dagana 19.-24. mars siðastliðna
fóru undirritaðir í kynnisferð til
Hollands þar sem skoðuð voru al-
sjálfvirk mjaltatæki, sem stundum
hafa verið nefnd mjaltaróbótar
(milking robots). Ferðin var farin á
vegum fyrirtækisins Vélar & Þjón-
usta, skipulögð af hollenska fyrir-
tækinu Lely. í ferðinni voru auk
undirritaðra, þeir Oddur Ólafsson
og Sverrir Geirmundsson frá V&Þ,
og svo úr bændastétt þeir Amar
Bjami Eiríksson, Gunnbjamarholti
í Gnúpverjahreppi, Benedikt
Hjaltason, Hrafnagili í Eyjafirði,
Bjami Aðalsteinsson, Gmnd í Eyja-
firði, Jóel Bæring Jónsson, Saurs-
stöðum í Haukadal í Dölum, og Óli
Pétur Gunnarsson, Litlu-Sandvík í
Flóa. Alls vom heimsótt 13 bú, þar
af var eitt skólabú og tvö tilrauna-
bú. Á 11 búum var Lely sjálfvirkur
mjaltabúnaður, á skólabúinu var
sjálfvirkur mjaltabúnaður frá fyrir-
tækinu Prolion og á einu búi var
ekki sjálfvirkur mjaltabúnaður enda
var tilgangur heimsóknarinnar
þangað að skoða fóðmnarkerfi frá
hollenska fyrirtækinu Wee-link.
Það sem strax vekur athygli þeg-
eftir
Lárus
Pétursson
°9
Þórodd
Sveinsson
Rannsókna
stofnun
landbún-
aðarins
ar komið er í fjós með Lely Astro-
naut, eins og tækið nefnist, er
hversu þróuð aðferðin virðist vera
orðin, og hversu rólegar og afslapp-
aðar kýmar virðast vera í þessu
kerfi. Kerfíð gengur út á það að
kýmar beri fullt traust til alls um-
hverfisins og búnaðarins, komi
sjálfviljugar í mjaltir þegar þeim
hentar og að eigin ákvörðun sem
þýðir að kýr kemur aldrei stressuð
til mjalta eða undir andlegu álagi
og er því róleg og þæg á meðan á
mjöltum stendur. Kýmar fá kjam-
fóður í mjaltaklefanum en það er sú
gulrót sem lokkar þær inn í klefann,
en eftir stendur engu að síður að
það er ákvörðun kýrinnar að fara
inn i klefann og hún veit að hún
mun verða mjólkuð ef hún fer þar
inn og fer því ekki inn nema hún sé
sátt við það að verða mjólkuð i leið-
inni.
Annað sem vekur athygli er
hversu íyrirferðarlítill búnaðurinn
er og hversu auðvelt er að koma
honum fyrir í ijósinu án mikilla
breytinga eða endurskipulagningar.
Fjósin, sem komið var í vom af
ýmsum stærðum og gerðum, ýmist
byggð sérstaklega með þessa tækni
í, huga eða að tæknin var sett i eldri
hús og í öllum tilvikum hafði tekist
að koma búnaðinum þannig fyrir að
kerfið virkaði vandræðalaust.
Mjaltabúnaðurinn með öllu tekur
u.þ.b. 15 m2 gólfþláss.
Hvernig vinnur tækiö?
Astronaut mjólkar með einu
mjaltatæki en er allan sólarhringinn
að störfum og miðað er við að eitt
tæki anni um 60 mjólkandi kúm
sem séu mjólkaðar að meðaltali
þrisvarádag. Það þýðir að ef burð-
artími er jafn yfir árið þá er hægt að
vera með 65-70 kýr. Það er þó auð-
vitað ekkert nauðsynlegt að vera
með svo margar kýr og nokkrir
þeirra sem við heimsóttum voru
með færri, allt niður í um 45 kýr, og
samkvæmt upplýsingum fylgdar-
manns okkar frá Lely þá er til eitt
bú í Belgiu sem er einungis með 32
kýr og samt með svona mjaltabún-
að. Á sama hátt má segja að ef
menn vilja búa ennþá stærra þá er
ekkert því til fyrirstöðu að vera með
fleiri en eitt tæki, og á tveimur af
þeim búum sem við heimsóttum
voru tvö tæki. Kýmar gátu þá valið
í hvort tækið þær fóm. I öðm til-
vikinu vom tækin hlið við hlið í
enda Qóssins, en í hinu vom tækin
hvort á sínum staðnum í fjósinu, en
samt þannig að allar kýmar höfðu
aðgang að báðum tækjunum. Það
virðist þvi ekki skipta mjög miklu
máli hvemig búnaðinum er kornið
fyrir í fjósunum, hann virkar alltaf.
Þegar engin kýr er í mjaltaklefan-
um er hann opinn og bíður eftir
næstu kú. Um leið og kýr gengur
inn í klefann lokast hann á eftir
henni, hún byrjar að fá kjamfóður í
smáum en reglulegum skömmtum
sem miðast við hversu mikið kjam-
fóður viðkomandi kú er ætlað að fá.
Armur mjaltatækisins fer undir
kúna og þvottabúnaðurinn strýkur
af spenunum, en það em tvær rúllur
30- FREYR 4/99