Freyr - 15.04.1999, Síða 33
búið dagsdaglega en kaupir sér af-
leysingamann í hálfu starfi til að
hafa eftirlit með búinu um helgar
og þegar hann fer í frí. Fóðuröflun-
in er þá að talsverðu leyti aðkeypt
líka. Eiginkonan vinnur svo ein-
hvers staðar annars staðar. Þetta
eru auðvitað öðruvísi aðstæður en
hjá okkur en það er þó ljóst að einn
maður getur auðveldlega séð um bú
með einu slíku tæki með því að
hafa einhvem til að leysa sig af á
frídögunum.
Samkeppni.
Samkeppni í sölu alsjálfvirkra
mjaltatækja er ennþá afar lítil. Tvö
fyrirtæki eru að framleiða og selja
slíkan búnað í dag, þ.e.a.s. Lely og
Prolion, en það virðist vera sem all
nokkur munur sé á því hversu þau
eru langt komin með að þróa búnað
sinn, Lely í hag. Við óskuðum eftir
því við fararstjóra okkar, sem var
fulltrúi Lely íyrirtækisins, að hann
færi með okkur á bú sem hefði tæki
frá Prolion, og varð hann fúslega
við því og fór með okkur á myndar-
legt skólabú þar sem slíkt tæki var,
og er rétt að taka fram að heima-
menn voru mjög ánægðir með það
tæki og kváðu það hafa reynst vel
og virka vel. Það fer þó ekki fram
hjá neinum að tæknilega stendur
það tæki hinu nokkuð að baki enda
byggt upp á nokkuð annan hátt. Þar
er einn armur sem sér um að mjólka
í fleiri en einum mjaltaklefa (þrem-
ur á þessu búi) þannig að þegar
hann er búinn að setja hylkin á eina
kú fer armurinn í burtu að næsta
klefa að mjólka kúna sem þar er.
Ef kýrin, sem fyrst var sett á, spark-
ar af sér er því enginn armur til að
setja strax á aftur og verður að bíða
nokkra stund eftir því að hann hafi
tíma. Þetta tæki getur heldur ekki
tekið af einum og einum spena
heldur er tekið af öllum þegar búið
er úr hinum síðasta þannig að tóm-
mjaltir geta orðið ef um mismjólka
kýr er að ræða.
Lely hefur unnið að þróun þessa
búnaðar síðan snemma á níunda
áratugnum. Það var þó ekki fyrr en
Mynd 3. Vélbúnaðurinn JJósmegin.
Mynd 4. „Hinum megin".
árið 1992 sem tæknin komst á það
stig að sett var upp eitt tæki á til-
raunabúi. Sex í viðbót voru settir
upp á árunum 1993-1994 og 1995
er hafin sala á almennum markaði.
Það er því komin nokkurra ára
reynsla á allmörgum búum og ljóst
að búnaðurinn virkar og uppíyllir
allar megin kröfur sem til hans eru
gerðar.
Mikill áhugi er orðinn á þessari
tækni víða um lönd og samkvæmt
upplýsingum Lely manna þá eru
þeir um þessar mundir t.d. að af-
Ljósmynd: ÞS.
Ljósmynd: ÞS.
greiða 3-4 tæki á viku til Danmerk-
ur. í Sviþjóð var gefið grænt ljós á
þessa tækni á dögunum og þar er
mikill áhugi. í Hollandi eru talsvert
á annað hundrað bú komin með
þessa tækni og eitthvað hefur selst í
Japan, Þýskalandi, Belgíu og víðar.
Fjöldi Astronaut tækja í notkun er
kominn vel yfir 400 alls.
Alfa Laval Agri hafa undanfarin
ár unnið hörðum höndum að því að
þróa alsjálfvirkan mjaltabúnað sem
þeir kalla VMS (voluntary milking
system - „mjaltir af frjálsum vilja“)
FREYR 4/99 - 33