Freyr - 01.05.2000, Page 34
Afkvœmarannsókn i r
á hrútum haustið 1999
Haustið 1999 voru
afkvæmarann-
sóknir á hrútum
unnar eftir sama kerfi og
byrjað var á að vinna eftir
haustið 1998. Eins og þá
styrkir Framleiðnisjóður
landbúnaðarins búnaðar-
samböndin við þessa ffam-
kvæmd. Nákvæmalega
sömu reglur giltu um
framkvæmdina og haustið
áður þannig að vísað er til
greinar þar um á síðasta
ári.
Umfang rannsóknanna
er sýnt í töflu 1. Þar má sjá
að umfang rannsóknanna
haustið 1999 var nánast
það sama það haust og
haustið áður og verður það
að teljast verulegur
árangur. Rannsóknir fóru
fram á 256 búum og komu
til dóms samtals 1428
afkvæmahópar. Þessar af-
kvæmarannsóknir sem
samþætta ómsjármælingar
og upplýsingar úr kjötmati
em tvímælalaust umfangs-
mesta ræktunarátak sem
gert hefur verið í íslenskri
sauðfjárrækt. Til að
tryggja þær ífamfarir, sem
nauðsynlegar em í fjár-
ræktinni, er mikilsvert að á
næstu ámm verði slíku
starfi ffam haldið í ekki
minna umfangi. Þær nið-
urstöður, sem þegar liggja
fyrir, sýna að umtalsverðs
árangurs má vænta af
þessu starfi. Framkvæmd
rannsókna má samt vafa-
lítið bæta víða.
Ákaflega breytilegt er
hvemig að framkvæmd
rannsóknarinnar er staðið á
hveiju einstöku búi. Nið-
urstöðumar hljóta að sjálf-
sögðu að verða í samræmi
við það og ber að skoða
með tilliti til þess. Rétt er
að gera sér grein fyrir
hvaða þættir em líklegastir
til að geta truflað ffam-
kvæmd og niðurstöður
mest í þessu sambandi.
Vafalítið er það ýmiss
konar úrval. Þar er um það
að ræða að það séu mjög
misvaldir hópar sem koma
til skoðunar undan
einstökum hrútum. Þannig
geta tæpast fengist sam-
anburðarhæfar niðurstöð-
ur. Þegar um það er að
ræða að taka lömb til óm-
sjármælinga skiptir því
miklu máli að það gerist á
einhvem hátt tilvilj-
unarkennt, en ekki með
vali. Gerist slíkt verður að
túlka niðurstöður af mikilli
varfæmi. Þá getur valið
einnig orðið þannig að
valið sé undir einstaka
hrúta markvisst. Ekki er
tekið tillit til þess við
uppgjör og eigi slíkt sér
stað hlýtur það að skekkja
niðurstöður. Hér getur
bæði verið um að ræða
markvisst val, eða óbeint,
t.d. við að ákveðnir ald-
urshópar séu settir undir
tiltekna hrúta eða um er að
ræða að taka tillit til
skyldleika innan búsins.
Aðeins þekkist að óm-
sjármælingar lamba á
sama búi fari ekki fram hjá
öllum lambahópnum á
sama tíma. Reynslan hefur
kennt að slíkt er óheppilegt
með tilliti til óm-
sjármælinga vegna þess að
þessar mælingar virðast
geta breyst mikið á
skömmum tíma að haust-
inu. Hins vegar er gmnd-
vallaratriði að hafa ætíð í
huga að fyrst og fremst er
um að ræða samanburð
innan hvers bús og fyrir
góðar niðurstöður skiptir
mestu að allt sé gert til að
slíkur samanburður verði
sem óbrenglaðastur.
Við uppgjör er eðlilegt
að nota upplýsingar um öll
sláturlömb undan hrútun-
um, sem í afkvæmarann-
sókninni em, nema eðli-
legt er að fella úr shku
uppgjöri lömb sem af ein-
hveijum þekktum ástæð-
um em alls ekki saman-
burðarhæf, t.d. undanvill-
inga, veik lömb og slösuð,
túngengin lömb þar sem
flest fé gengur á úthaga
o.s.frv.
Reynsla sýnir að sam-
ræmi á milli ómsjármæl-
inga og niðurstaðna úr
kjötmati er ekki vemlega
sterkt. Þetta virðist einkum
áberandi á búum þar sem
um er að ræða langræktað
fé og þar af leiðandi oft
mjög valinn og jafnan
hrútastofn. Á sumum
þeirra búa verða því ekki
jafn skýrar niðurstöður og
annars staðar og skýrir það
að sum þeirra búa koma
ekki fyrir í umfjöllun hér á
eftir þegar vikið er að þeim
hrútum sem sýndu einna
skýrastar niðurstöður um
yfirburði í rannsóknunum í
haust. Það er ekki neitt
vafamál að ómsjármæling-
ar em verðmætar viðbót-
amiðurstöður við niður-
stöður kjötmatsins vegna
þess að mælingar á vöðva-
þykkt með ómsjánni em
nákvæmasti mælikvarði
um kjötmagn viðkomandi
einstaklings sem við
eigum möguleika á að fá.
Við úrvinnslu upplýs-
Tafla 1. Umfang afkvæmarannsókna haustið 1999.
Svæði Fjöldi búa Fjöldi hópa
Vesturland 47 293
Vestfirðir 9 51
Strandasýsla 26 1790
V-Húnavatnssýsla 28 166
A-Húnavatnssýsla 9 48
Skagafjörður 37 169
Eyjafjörður 16 75
S-Þingeyjarsýsla 9 61
N-Þingeyjarsýsla 19 133
Austurland 24 99
A-Skaftafellssýsla 6 28
Suðurland 26 126
Samtals 256 1428
34 - FREYR 4-5/2000