Freyr - 01.05.2000, Síða 39
554 mjög ljósir í saman-
burði margra hrúta á
Kirkjubæjarklaustri, jafn-
vígur á báða þætti með
127 í heildareinkunn.
Birkir er undan Galsa 93-
963. Raftur 96-602 bar af
hrútunum í Mörk með
129 í heildareinkunn, en
einkum var það í ómsjár-
mælingum sem yfirburðir
voru verulegir (einkunn
147). Á Borgarfelli bar
hópur undan Bauki 98-
560 talsvert af öðrum. En
þessi hrútur gaf frábæra
flokkun og afkvæmi hans
komu einnig mjög vel út í
ómsjármælingum og var
hann með 132 í heildar-
einkunn. Baukur er undan
Búti 93-982. Gýmir 98-
562 sýndi einnig athyglis-
verða niðurstöðu í kjöt-
mati, en þar var hann með
131 í einkunn, en lömb
undan honum voru mjög
fitulítil. Þessi hrútur er
sonur Malar 95-812.
Hlekkur 97-546 í Úthlíð
sýndi eins og á síðasta ári
ótrúlega yfirburði við óm-
sjármælingar þar sem
hann var með 141 í eink-
unn í þeim hluta og af-
kvæmi hans hafa frábær
lærahold en hjá þessum
Bútssyni voru sláturlömb
of feit þannig að hann féll
mjög í einkunn fyrir kjöt-
matshluta vegna þess. Á
Syðri-Fljótum voru tveir
veturgamlir hrútar, Birkir
98-221 og Njörður 98-
222, með ákaflega góðar
niðurstöður eða með 127
og 125 í heildareinkunn
en báðir eru hrútar þessir
frá Kirkjubæjarklaustri
og samnefndir feðrum
sínum þar. I Ytri-Sól-
heimum kom öflugur son-
ur Þéttis 91-931, sem
Stubbur 97-254 heitir, en
hann var með 125 í heild-
Spónn, Ytrí-Skógum.
areinkunn, þar sem skýrir
yfirburðir voru á báðum
þáttum.
I Ytri-Skógum voru vet-
urgömlu hrútamir eins og
ætíð í afkvæmarannsókn.
Þar skar sig verulega úr
Spónn 98-128 sem fékk
120 í heildareinkunn. Þessi
hrútur skilar óhemjulega
þykkum vöðva hjá af-
kvæmum sínum og læra-
hold þeirra eru með ólík-
indum en hins vegar
virðist hann gefa aðeins of
feit sláturlömb. Það er með
ólíkindum í jafn þaulrækt-
uðu fé og þama er að fá
fram einstakling sem sker
sig jafn feikilega úr og
Spónn gerir þar sem lesa
mátti afkvæmi hans úr
lambahópnum. Spónn var
um leið sem einstaklingur
þriðji besti hrúturinn í sýsl-
unni haustið 1999 þannig
að þama fer rakinn sæð-
ingarstöðvahrútur í ffarn-
tíðinni. Spónn er sonur
Glaðs 96-085. Á Voðmúla-
stöðum hafði Prúður 96-
046 alla yfirburði í báðum
þáttum með 131 í heildar-
einkunn, en þar fer einn
toppanna undan Bút 93-
982. Á Grímsstöðum í
Vestur-Landeyjum kom
einn allra mesti yfirburða-
hópur haustsins undan
Flotta 98-151 en hann fékk
152 í heildareinkunn úr
rannsókninni, sem skiptist
nokkuð jafnt á báða þætti
hennar. Eins og kemur
fram í grein um hrútasýn-
ingar er þetta sá hrútur sem
dæmdur var besti ein-
staklingurinn í sýslunni.
Þessi afburðahrútur er
sonur Búts 93-982.
I Háholti tók einn hrút-
ur af fjórum alla yfir-
burði, en það var Stapi
98-628 sem fékk 135 í
heildareinkun og þar af
150 í kjötmatshluta, en
Stapi er frá Oddgeirshól-
um undan Stubb 95-815. í
Langholtskoti kom fram
hrúturinn Ormur 98-286
með 144 f einkunn og úr
kjötmatshluta hvorki
meira né minna en 169.
Þessi stjömukind er und-
an Möl 95-812. í Skip-
holti báru afkvæmi Lykils
98-036 af í samanburði
fimm hrúta en hann fékk
121 í heildareinkunn, en
hann er sonur Húns 92-
809. í Auðsholti var Mel-
ur 97-243 afgerandi á
toppi með 135 í einkunn
en úr kjötmatshluta 155,
en hrútur þessi er sonur
Mola 93-986. í Amarholti
féll allur plús rannsóknar-
innar í skaut Skarpi 98-
509 með 130 í einkunn,
en þetta er sonur Garps
92-808.
Skarpur 98-509, Amarholti.
FREYR 4-5/2000 - 39