Freyr - 01.09.2000, Page 26
s
Alyktanir aðalfundar
Landssamtaka sauðfjárbænda 2000
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda
2000 var haldinn í félagsheimilinu Fjarðar-
borg á Borgarfirði eystra dagana 15. og 16.
ágúst sl. Hér á eftir fara heistu ályktanir fundarins
en fundargerðin ásamt öllum ályktunum fundarins
er birt á heimasíðu Bændasamtakanna,
www.bondi.is
Beingreiðslur
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 beinir því til
félagsmálaráðherra að hann beiti sér
fyrir lækkun fasteignagjalda af
íbúðarhúsnæði í dreifbýli. Sá
álagningarstofn, sem nú er notaður
og er reiknaður út frá húsnæðisverði
á höfuðborgarsvæðinu, endurspegl-
ar engan veginn verð húsnæðis í
dreifbýli.“
Mótun vinnureglna
vegna nýs
sauðfjársamnings
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 beinir því til
Framkvæmdanefndar um búvöru-
samning að hún sjái um að sem allra
fyrst verði mótaðar þær reglur sem
vinna á eftir við framkvæmd nýs
sauðfjársamnings. Fundurinn legg-
ur sérstaka áherslu á að landnýting-
arþáttur gæðastýringar verði unninn
á faglegan og sanngjaman hátt.“
Sameiginlegt gæðamerki
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 felur stjóm að
láta reyna á hvort ná megi samstöðu
um að markaðssetja íslenskar land-
búnaðarafurðir erlendis undir einu
gæðamerki.“
Kennsluefni í
sauðfjárrækt
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda, árið 2000 skorar á
stjóm LS og Fagráð í sauðfjárrækt
að þrýsta á að flýtt verði svo sem
frekast er unnt gerð heilsteypts og
vandaðs kennsluefnis í sauðfjár-
rækt til notkunar í skólum, á nám-
skeiðum og til almennra nota.“
EUROP kjötmatið
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda, árið 2000 krefst þess að
EUROP kjötmatið eitt verði notað
til merkingar kindakjöts og að þær
merkingar fylgi til neytenda í heil-
stykkjasölu. Stjóm LS sé falið að
vinna að þessu máli í samráði við
sláturleyfishafa og kjötmatsfor-
mann.“
Gæðastýring
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda, árið 2000 fagnar þeirri
vinnu sem hafin er í gæðastýring-
unni, en leggur áherslu á að ráð-
gjafahópur gæðastýringarinnar leiti
allra leiða til að framkvæmd og
eftirlit hennar verði einfalt og hag-
kvæmt. Þá beinir fundurinn því til
Framkvæmdanefndar búvörusamn-
inga að nú þegar verði skilgreint
hlutverk búnaðarsambanda í fram-
kvæmd gæðastýringar og þeim
verði tryggt það fjármagn sem þarf
til þeirra verkefna sem þeim verða
falin.“
Lög um búfjáreftirlit
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 bendir Bænda-
samtökum íslands og landbúnaðar-
ráðuneytinu á að ekki er nóg að
setja lög um búfjáreftirlit. Finna
verður leiðir til þess að fylgja þeim
eftir og taka á þeim málum sem upp
koma á skjótvirkari og öruggari
hátt. Tryggja verður réttarstöðu bú-
Qáreftirlitsaðila til aðgerða.“
Skilti við þjóðvegi
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 beinir því til
stjómar LS að beita sér fyrir því að
Vegagerð ríkisins setji upp aðvör-
unarskilti þar sem hætta er á sauðfé
á þjóðvegum landsins. Einnig að
séð sé til þess þar sem girt er
meðfram vegum að vegsvæðinu sé
lokað með viðunandi hætti.“
Greinargerð
Víða erlendis ganga villt dýr
laus, s.s. elgir, dádýr, hérar o.fl.,
við vegi og hraðbrautir. Þar er
víða varað sérstaklega við umferð
þessara dýra með aðvörunarskilt-
um við þá kafla þar sem þeirra er
helst von. Á þetta einnig við, t.d.
þar sem vegir eru afgirtir, en sum
þessara dýra s.s. dádýr er erfitt að
hemja innan girðinga. Það sama
á við víða hérlendis þar sem erfitt
er að girða sauðfé af vegum
vegna staðhátta.
Úttekt á heimalöndum
vegna landnýtingar
„Aðalfundur Landssamtaka sauð-
fjárbænda árið 2000 skorar á
Framkvæmdanefnd búvörusamn-
inga að flýtt verði eins og kostur
er, úttekt á heimalöndum og
afréttum bænda, sem vafi leikur á
að standist landnýtingarþátt
gæðastýringar, þannig að úr
þessu verði skorið áður en lokað
verður fyrir uppkaup ríkisins á
greiðslumarki.“
26 - FREYR 7/2000