Freyr - 01.09.2000, Qupperneq 34
Önnur efni
Svokölluð varnarefni, eins og
skordýraeitur og illgresislyf, geta
borist í dýr með fóðri og drykkjar-
vatni og þar með í sláturafurðir.
Auk vamarefnanna má nefna ýmis
önnur efni sem geta borist í dýr úr
umhverfinu svo sem þungmálma,
PCB og geislavirk efni. Hér á landi
hafa Geislavarnir ríkisins eftirlit
með geislavirkum efnum.
íslenskar aðstæður
Á Islandi ættu að vera góð skilyrði
til að framleiða hreinar og ómeng-
aðar sauðfjárafurðir. Við búum við
þá auðlegð að eiga hreint vatn og að
umhverfismengun er lítil, enda er
hér lítill efna- og þungaiðnaður.
Lyfjalöggjöf er ströng og notkun
lyfja er einungis heimil í samráði við
dýralækna. Islensk stjómvöld hafa
verið svo framsýn að ætíð hefur
verið bann við íblöndun lyfja í
fóður, nema til lækninga.
Aðbúnaður búfjár er hér góður,
notkun vamarefna í landbúnaði lítil
og gott rými fyrir búfé í húsum og
högum. Vegna þessa hefur því
ávallt verið haldið fram að íslenskt
kjöt og sláturafurðir væru hreinar
afurðir, þ.e. lausar við aðskotaefni
og lyfjaleifar.
Eftirlit með
aðskotaefnum
Hér á landi hefur embætti yfir-
dýralæknis haft skipulegt, reglu-
bundið eftirlit með aðskotaefnum í
sláturafurðum síðan 1989.
Skilyrði þess að sláturhús fái út-
flutningsleyfi á Bandaríkja- og Evr-
ópusambandsmarkaði er að haft sé
eftirlit með aðskotaefnum í slátur-
afurðum, útbúnar sýnatökuáætlanir
og að niðurstöður úr mælingum séu
viðunandi að mati þarlendra heil-
brigðisyfirvalda. Slíka viðurkenn-
ingu höfum við haft frá árinu 1990.
Kjötskoðunarlæknar taka sýni í
sláturhúsum, skrá þau og merkja
samkvæmt fyrirmælum yfirdýra-
læknis. Mælingamar hafa undan-
farin ár verið gerðar á fjómm mis-
munandi rannsóknastofum; sýkla-
Víðáttur íslands stuðla að hreinleika afurða landbúnaðarins.
lyfjamælingamar hafa verið fram-
kvæmdar á Keldum, þungmálma-
mælingamar á Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, sníklalyfjamælingar
í Osló en allar aðrar mælingar í
Helsinki í Finnlandi.
Á árinu 2000 er ráðgert að mæla
275 sýni úr sauðfé en íjöldi mælinga
er talsvert meiri vegna þess að í
mörgum tilvikum er fleira en eitt efni
mælt í hveiju sýni. Mælingamar kosta
umtalsverða ijármuni og em greiddar
úr Eftirlitssjóði landbúnaðarráðuneyt-
isins. Þótt mælingamar séu dýrar er
nauðsynlegt í nútímaþjóðfélagi að
hafa slíkt eftirlit. Telja verður að þess-
um ijármunum sé vel varið, stuðli eft-
irlitið að því að íslenskar sauð-
fjárafurðir haldi þeiiri ímynd sinni að
þær séu hreinar og ómengaðar.
Niðurstöður mælinga
Við mat á niðurstöðum hefur ver-
ið stuðst við íslenska reglugerð um
aðskotaefni í matvælum og reglu-
gerð um hámarksmagn dýralyfja-
leifa í sláturafurðum, eggjum og
mjólk. Áður en þessar reglugerðir
vom gefnar út, var stuðst við er-
lendar reglur og þá helst viðmiðun-
arreglur Alþjóða staðlaskrárráðsins
(Codex alimentarius) og banda-
ríska, norska og sænska staðla.
Niðurstöður úr mælingum undan-
farinna ára em í stuttu máli þær að
í sauðfjárafurðum hafa mæld efni
annað hvort verið undir greiningar-
mörkum eða gildin hafa verið langt
undir viðmiðunarmörkum.
Mælingamar staðfesta að íslensk-
ar sauðfjárafurðir eru hreinar og
ómengaðar og að lítil hætta stafi frá
umhverfismengun. Öðru máli
gegnir með mengun af völdum
lyfja og lyfjaleifa. Þar þurfum við
að vera á varðbergi. Ekki verður hjá
því komist að nota lyf í lækninga-
skyni í sauðfjárbúskap sem skapar
hættu á mengun afurðanna.
Þar gegna bændur miklu ábyrgð-
arhlutverki. Það er fyrst og fremst
undir þeim komið að lyfjaleifar
finnist ekki í lambakjöti og slátur-
afurðum sauðfjár.
Þeir einir geta, og verða, að
tryggja að sauðfé sem hefur verið
meðhöndlað með lyfjum sé ekki
sent til slátrunar fyrr en tilskilinn
tími er liðinn frá síðustu lyfjagjöf.
Útskolunartími lyfja er mislangur
og dýralæknar geta upplýst bændur
um hversu löngu eftir lyfjameð-
höndlun megi slátra dýrunum. Hinn
1. ágúst síðastliðinn tók gildi reglu-
gerð nr. 539/2000 um heimildir
dýralækna til að ávísa lyfjum. I
reglugerðinni eru þrengdar heim-
ildir dýralækna til að ávísa sýkla-
lyfjum og er það meðal annars gert
í þeim tilgangi að tryggja, eins og
kostur er, að búfjárafurðir séu laus-
ar við lyfjaleifar.
Markmiðið íslenskrar sauðfjár-
ræktar er og verður að vera að
standa undir þeirri staðhæfingu og
ímynd, að íslenskt lambakjöt se
hreint og laust við lyfjaleifar og
önnur aðskotaefni.
34 - FREYR 8/2000