Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2000, Blaðsíða 37

Freyr - 01.09.2000, Blaðsíða 37
innar eins og þeir eru taldir upp í því skjali. Sú upptalning fylgir hér: 1. Landnot. Framleiðandinn sýnir fram á afnotarétt af landi, þar með talið afrétt, sem fullnægir beitarþörf alls búpenings viðkomandi bús. Nánar skil- greint r gæðahandbók. 2. Einstaklingsmerkingar. Sauðfé merkt og skráð skv. gæðahand- bók. 3. Kynbótaskýrsluhald. Bústofn skráður og metinn í viðurkenndu kynbótaskýrsluhaldi. 4. Gæðadagbók. Hirðing og með- ferð bústofns skráð skv. gæða- handbók. 5. Búfjáreftirlit. Leggja skal fram vottorð frá búfjáreftirlitsmanni sveitarfélags um fóður, aðbúnað og ástand búfjár sbr. ákvæði gæðahandbókar. Lagt skal mat á ytri ásýnd býlisins, sbr. ákvæði gæðahandbókar 6. Lyfjaeftirlit. Gera skal grein fyrir kaupum og notkun lyfja á búinu. 7. Áburðarnotkun og uppskera. Gera skal grein fyrir áburðar- notkun, hvemig hún er ákvörðuð og uppskera skráð af hverri spildu, sbr. ákvæði gæðahand- bókar. 8. Fóðrun. Gera skal grein fyrir fóðrun og fóðurefnum (beit, heygjöf, kjamfóður, annað) sbr. ákvæði gæðahandbókar. Fyrsti þátturinn, þ.e. landnýtingar- máhn, er á verksviði Nytjalands, en að því verkefni standa sameiginlega Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Bændasamtök íslands, Landgræðsla ríkisins og Skógrækt ríkisins. Þar sem þetta verkefni fellur ekki undir verksvið ráðgjafanefndarinnar verð- ur ekki frekar um það fjallað hér en bent er á grein um efnið (Olafur Am- alds: Nytjaland - landupp- lýsingavefur landbúnaðarins. Ráðu- nautafundur 1999, bls. 1-4). Grein- ina er einnig að finna á vefsíðu Rala, www. rala. is/radunautafundir/ Þættir 2-4, þ.e. einstaklings- merkingar, kynbótaskýrsluhald og gæðadagbók um hirðingu og með- ferð bústofnsins eru í raun betr- umbætt skýrsluhald á borð við það sem unnið hefur verið á vegum fjárræktarfélaganna undanfarna áratugi. Nálægt 40% af sauðfé landsmanna hafa verið í því skýrsluhaldi á undanförnum árum. Sífellt fleiri fjárbændur nota skýrsluhaldsforritið Fjárvís sem ætlað er að vera eitt meginverk- færið í gæðastýringunni fyrir þá sem það kjósa. Er allsherjar end- urskoðun á forritinu þegar í full- um gangi. Auk liða 2-4, sem fyrr var getið, mun forritið halda utan um lyfjaskráningu (liður 6) og skráningu á fóðri og fóðrun (liður 8). Jarðræktarforritið NPK verður hins vegar nýtt til skráningar á atr- iðum er varða áburðarnotkun og uppskem (Liður 7). Forritin verða þróuð með tilliti til þess að þau geti unnið saman, þannig að til dæmis megi taka uppskerutölur og ýmsar gæðaupplýsingar um heyið úr NPK og flytja beint yfir í Fjár- vís þar sem það er svo nýtt vegna fóðurskráningar. Ekki eru allir bændur tilbúnir að taka upp tölvunotkun og því verð- ur séð til þess að skráning á öllum þeim þáttum sem að framan eru taldir megi líka fara fram hand- virkt í hina þar til gerðu gæða- handbók. Fjárbændur í gæðastýr- ingu þurfa sem sagt allir að fylla út gæðahandbókina, en valið stendur um hvort upplýsingar eru skráðar handvirkt ellegar slegnar inn í tölvu, unnið úr þeim þar og einstök blöð í gæðahandbókinni prentuð út. Þetta á líka við um þann hluta er snýr að kynbóta- skýrsluhaldinu, rétt eins og verið hefur. Gert er ráð fyrir því að menn geti tekið þátt í kynbóta- skýrsluhaldinu án þess að upplýs- ingar frá þeim komi fram í sam- bandi við birtingu á niðurstöðum fjárræktarfélaganna. Samspil hjálpartœkja, ráðgjafar og markmiðstengdra búrekstraráœtlana er þýðingarmikið í gœðastýringu. FREYR 8/2000 - 37

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.