Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2003, Page 24

Freyr - 01.03.2003, Page 24
Staða mjólkurframleiðslu A undanfömum árum hefur ver- ið jöíh aukning í sölu mjólkuraf- urða sem hefur leitt til hækkunar greiðslumarks til mjólkurfram- leiðslu. Þessi aukning hefur gengið nokkuð til baka á síðasta ári og því horfur á samdrætti greiðslumarks. Mjólkurverð til framleiðenda hefur einnig haldið raungildi neysluverðsvísitölu undanfarin ár, m.a. vegna góðrar samstöðu í Verðlagsnefnd búvara, en mjólk og mjólkurvörur eru raunar eina búvöruframleiðsla sem lúta opinberri verðlagningu. Afkoma í mjólkurffamleiðslu hef- ur því verið viðunandi en lækk- andi verð á nautakjöti hefur þó haft neikvæð áhrif á tekjur flestra kúabænda.. Fyrirkomulag verðlagningar og stuðningur við mjólkurfram- leiðslu er bundinn í búvörusamn- ingi sem rennur út 31. ágúst 2005. Þótt enn lifi hluti samningstím- ans er eigi að síður margra hluta vegna brýnt að helja gerð nýs samnings. Því rituðu Bændasam- tök Islands og Landssamband kúabænda landbúnaðarráðherra bréf í ágúst sl. þar sem óskað var eftir að hefja undirbúning að gerð nýs samnings. Málinu hefur þó miðað hægt af mörgum ástæðum. Fljótlega eftir að umræður hóf- ust um nýjan samning kom í ljós að takmarkaður pólitiskur vilji var til samningagerðar fyrir kosning- ar. Kom þar margt til og þá ekki síst að hæpið þótti að binda al- gjörlega hendur næstu ríkisstjóm- ar án þess að brýnt tilefni væri til. Þá hefur sú mikla óvissa sem uppi er varðandi alþjóðaumhverfi þau áhrif að erfitt er á þessu stigi að semja um það fyrirkomulag stuðnings sem gilda skal eftir 2005. Þá kom einnig ffam áhugi Samtaka afurðastöðva í mjólkur- iðnaði, Alþýðusambands íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á að koma að samningagerð- inni. Var þá ákveðið að bjóða Samtökum atvinnulífsins einnig þátttöku og jafnffamt ákveðið að skipta samningaferlinu í þijá þætti, mati á reynslu af gildandi samningi og því umhverfí sem setur nýjum samningi skorður, stefhumörkun um ffamtíðarfýrirkomulag mjólk- urframleiðslu og vinnslu og loks gerð nýs samnings um starfsskil- yrði mjólkurframleiðslu til nokk- urra ára. Akveðið var að þeir aðil- ar, sem upp voru taldir hér að ffam- an, kæmu að fyrri tveim þáttunum og er sá fyrsti raunar hafínn. Bændur og stjómvöld lykju síðan samningagerð á grundvelli fyrir- liggjandi niðurstaðna. Erfiðleikar á kjötmarkaði Undanfarin ár hafa margir spáð mikilli aukningu kjötframleiðslu og í kjölfar þess erfiðleikum og verðhruni á kjötmarkaði. Þetta gekk lengi vel ekki eftir, þó að vissulega hafí verðið lækkað und- anfarin ár en sjúkdómar og fleiri vandamál í alifugla- og svínarækt hafa orðið til þess að ekki varð sú framleiðsluaukning sem spáð var. Þá hefur kjötmarkaðurinn hefur einnig stækkað meira en búist var við. Ef til vill á þetta sinn þátt í því að of margir höfðu óraunhæfar væntingar um að áframhaldandi aukning kjötframleiðslu væri möguleg án vandræða. Sú hefur ekki orðið raunin og á síðasta ári varð verðfall á öllu kjöti vegna of- framboðs þannig að mikið af framleiðslunni er selt undir kostn- aðarverði, en jafnframt safnast birgðir upp. í þessari stöðu er eðlilegt að spurt sé hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þessa stöðu sem fyrirsjáanlegt er að veldur fátækt og jafnvel gjaldþroti hjá ijölda bænda. Vandséð er hvemig við hefði mátt bregðast. Engar takmarkanir em á kjötframleiðslu hér á landi ef fullnægjandi framleiðsluaðstaða erfyrirhendi. Reglur um meðferð búfjáraáburðar em vægari en víða í Evrópu og eftirfylgni slök. Hugsanlega hefði verið unnt að fylgjast betur með aukningu fram- leiðslu- aðstöðu og birta upplýs- ingar þar um. Segja má að eina raunhæfa stjórntækið, sem bændur og stjómvöld hafa, sé þó Lánasjóður landbúnaðarins sem veitir lán til flestra nýbygginga og aukningar framleiðsluaðstöðu í landbúnaði. Eftir á að hyggja hefði mátt beita Lánasjóðnum með öðmm hætti er gert hefur verið en þó var það engan veginn auðvelt, ekki síst vegna þess að aðrar lánastofn- anir hafa verið ótrúlega fusar til að lána fjármagn til kjötfram- leiðslu. Mestu máli skiptir þó að leysa bráðavanda á kjötmarkaði og tak- marka það tjón sem bændur verða fyrir. Eigi bændur að ná viðun- andi tekjum verður að laga fram- boð að innlendum markaði. Til þess virðast þrjár leiðir. * Bíða þess að hluti bænda gefíst upp gjaldþrota. Sú leið er bæði kostnaðarsöm og sársaukafull. * Flytja skipulega úr landi þá framleiðslu sem ekki er rúm fyrir á innlendum markaði en það hafa sauðfjárbændur raun- ar gert á undanfömum ámm. * Draga skipulega úr ffamleiðslu þar til kjötmarkaður kemst í jafnvægi. Sú leið er bændum augljóslega hagkvæmust. Ekki fer hjá því að erfiðleikar á kjötmarkaði hafí áhrif á afkomu sauðQárbænda. Veruleg verð- lækkun hefur orðið á kindakjöti en sú lækkun lendir í fyrstu mest á sláturleyfishöfum. Sölusamdrátt- ur hefur einnig orðið vemlegur. 124 - Freyr 2/2003

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.