Freyr - 01.11.2002, Side 27
lands (BÍ). Skilyrði sem sett voru
fyrir notkun á upplýsingum um
frumutölu voru að gerðar hefðu
verið a.m.k. tvær mælingar á
fyrstu fjórum mánuðunum eftir
burð. Upplýsingar um 92 kvígur
frá níu búum uppfylltu þessi ski-
lyrði.
Niðurstödur
Selett
Virkni GP í sýnum frá báðum
árunum reyndist vera á bilinu 6
til 200 einingar, meðaltalið var
53 einingar. Miðgildið var 38
einingar og helmingurinn af gild-
unum var á bilinu frá 26 til 65
einingar. Ekki reyndist vera
marktækur munur á meðaltali
GP-gildanna á milli ára né á milli
mánaða.
Kvígunum var skipt niður í
fimm flokka miðað við GP-gildi
og reyndust þá 60% þeirra hafa
minna en 50 einingar, 87%
minna en 100 einingar og 99%
minna en 200 einingar, sjá 1.
mynd. Breytileikinn á milli bæja
var mikill, allt frá því að engin
kvíga væri með lægra GP-gildi
en fimmtíu upp í það að allar
væru undir þeim mörkum.
Júgurbólgusýklar
Spenasýni voru tekin úr 150
kvígum í fyrstu viku eftir burð.
Hjá 36 þeirra greindust engir
sýklar en hjá hinum ein eða fleiri
tegundir af sýklum. 23 kvígur
reyndust hafa Staphylococcus
aureus í einum eða fleiri spenum,
16 kvígur höfðu streptokokka,
hjá tveimur greindust E. coli sýk-
lar og 103 kóagúlasa neikvæðir
stafylokokkar, sjá 2. mynd.
Kóagúlasa neikvæðir stafylo-
kokkar eru venjulega taldir til
eðlilegrar gerlaflóru en eru flokk-
aðir hér sem júgurbólgusýklar
þar sem þeir geta í sumum tilfell-
um valdið júgurbólgu.
Júgurbólgusýklar greindust að
1. mynd. Hlutfallslegur fjöldi kvígna í hverjum flokki GP-gilda.
meðaltali hjá 76% kvígna á
hverjum bæ en hlutfallið var
mjög breytilegt eftir bæjum, frá
því að engin var með sýkingu
upp í aó allar væru sýktar. Væru
kóagúlasa neikvæðir stafylo-
kokkar ekki taldir með reyndust
að meðaltali 27% kvígna á
hverjum bæ vera sýktar og
breytileikinn á milli bæja var
minni, aldrei meira en helmingur
kvígnanna sýktur.
Samband selens og júgur-
bólgusýkla
Ekki reyndist vera marktækur
munur á meðaltali GP-gilda hjá
kvígum sem greindust með júg-
urbólgusýkla í fyrstu viku eftir
burð og hjá þeim sem ekki
greindust með júgurbólgusýkla á
sama tima. Sama gilti þegar
kóagúlasa neikvæðir stafylokokk-
ar voru teknir úr hópi júgur-
bólgusýkla.
Skoðað var hvort kvígur með
minna en 50 einingar GP væru
líklegri til að vera smitaðar af
júgurbólgusýklum í fyrstu viku
efitir burð en kvígur með meira
en fimmtíu einingar. Svo reyndist
ekki vera.
160
140
120
100
:° 80
ÍZ' 60
40
20
0
<ð
£
<</
□ Heildarflöldi kvígna (150)
□ Fjöldi kvígna með
viðkomandi greiningu
Greiningar
2. mynd. Greining sýkla i spenasýnum sem tekin voru i fyrstu viku eftir
burð. Fjöldi kvigna með viðkomandi greiningu í einu eða fleiri sýnum.
Freyr 9/2002 - 27 |