Skátablaðið - 01.04.1947, Blaðsíða 10
undirbúning hátíðahalda í sambandi við
25 ára afmælið. í nefndinni eru: Frú
Hrefna ’Fynes, frú Áslaug Friðriksdóttir,
Borghildur Strange, Sigríður Guðmunds-
dóttir og Soffía Stefánsdóttir. Nefndin hef-
ir ekki endanlega ákveðið, á hvern hátt
afmælisins verður minnst, en i ráði er að
<tefa út vandað afmælisrit, sem í verði frá-
sagnir allra helztu kvenskátaforingja á land-
inu af skátastarfi þeirra, svo og annað, er
við kemur þróun og sögu skátahreyfingar-
innar á íslandi.
Auka aðalfundur B.Í.S. verður haldinn
4. og 5. júlí. Er það mjög heppilegt fyrir
Kvenskátafélag Reykjavíkur, að fá þannig
tækifæri til að bjóða foringjum, sem koma
utan af landi, á afntælisfagnað þann, er
það ætlar að halda laugardagskvöldið 5-
júlí í Skátaheimilinu við Hringbraut.
Skátablaðið mun nánar geta þessa afmæl-
is síðar.
Framhald af bls. 29:
Reyndu að afla þér upplýsinga urn þau örnefni, sern þar finnast, og kynntu
þér sögu þeirra. Þessar sögur eru heill heimur lífs, og flestar táknrœnar fyrir
þjóðlíf okkar.
Lærðu að þekkja þær jurtir, sem verða á vegi þinum. Þær eru lifandi verur,
sem heyja lifsbaráttu sina eins og við, þótt á annan hátt sé.
Kynntu þér þau dýr, fugla o. fl., sem þú sérð á ferðalagi þínu.
Og mundu, að steinar og jarðlög tala sínu þögla máli um sögu og myndun
lajidsins sins.
Það eru til þeir menn, sem muna lítið efni. bókar, þótt þeir hafi lesið hana.
Þá menn skortir bæði skilning og athygli. Aðrir eru þeir, sern skilja vel og
muna það, sem þeir lesa.
Landið okkar að sumarlagi er stór, falleg og fjölskrúðug bók með ótærnandi
lesefni. Reyndu, skáti, að líkjast þeim, sem sér og skilur. Þvi miður eru allt of
margir ferðamenn ólæsir á náttúrunnar bók. Vertu ekki einn af þeim. Lestu
af kappi í bók landsins þins. Eftir því, sem þú Jest meird, langar þig til að
lesa meira, þxn að lesturinn veitir þér fræðslu um lífið sjálft og eykur ást þína
á föðurlandi þínu.
JÓNAS B. JÓNSSON.
Kvenskátahreyfingin
á fsiandi 25 ára
Kvenskátafélag Reykjavíkur verður 25
ára í sumar, stofnað 7. júlí 1922. Tildrög
að stofnun félagsins voru þau, að hér var
stödd dönsk K.F.U.K.-skátastúlka, ungfrú
Gertrud Hansen, nú frú Friðriksson skáta-
foringi á Húsavík. Hún ásamt ungfrú
Jakobínu Magnúsdóttur, sem hafði starfað
nteð kvenskátum erlendis, stofnuðu félagið
og hét það fyrst Kvenskátaíélag K.F.U.K.
og var innan vébanda þess. Þetta var fyrsta
kvenskátafélagið á íslandi, en 1925 var
stofnað kvenskátafélag í Hafnarfirði og svo
koll af kolli víðs vegar um landið. Nú eru
alls starfandi kvenskátar á tuttugu stöðum
á landinu.
Á aðalfundi Kvenskátafélags Reykjavík-
ur í haust, var kosin nefnd til að annast
30
SKATABLAÐIÐ