Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1910, Síða 4

Sameiningin - 01.07.1910, Síða 4
132 •án alls kvíða til þess hug’sað, — því vitanlega var hann frábærlega sterk hetja drottins og taldi sér það upphefð að ganga undir krossi skyldunnar og krossi mótlætisins fyrir hann. Þó gat tilhugsan breytingarinnar, sem nú var orðin á æfikjörum hans, með tilliti til sjálfs hans — snöggvast í bili — orðið honum all-mikill sársauki. En vafalaust hefir hitt verið honum miklu sárari hugsan, hve óbœtanlegt tjón þetta, sem fyrir hann var nú komið, hlyti sennilega að verða fyrir málefni kristindómsins í heiminum. Ekfcert því eðlilegra en það, að Páll hafi verið stórvægilega hnugginn, er liann lagði sig út af þetta. fcvöld í varðhaldi rómversku hermannanna í Jerúsalem. Mér skilst, að hann hafi þá búið yfir mjög raunalegum hugsunum, að því leyti verið í samskonar sporum og Elía spámaðr forðum niðrbrotinn á flóttan- um undan reiði Jessabelar, eða einsog Jóhannes skírari áðr en hann sendi til frelsarans úr myrkvastofunni. Og vafalaust hefir Páll, annar eins bœnarmaðr, leitað drottins biðjandi út af þessum döpru raunahugsunum sínum. Hinn helgi söguritari lætr alls þessa ógetið; en oss er auðgefið að lesa það út á milli línanna. Hið fyrra vers textans sýnir afskifti frelsarans af Páli og hryggðarhugsunum hans þá er hér var komið í sogunni, og má af því ráða allt þetta liitt, sem látið er á huldu. Iilustið aftr á það vers: „En nóttina eftir stóð drottinn hjá honum og sagði: Yertu liugliraustr! því að einsog þú hefir vitnað um mig í Jerúsalem, eins ber þér einnig að vitna í Róm.“ Hvort drottinn hefir í þetta skifti birzt postulanum í vöku eða svefni verðr ekkert fullyrt um, enda stendr alveg á sama, hvort af því tvennu verið hefir. Það eitt er í því efni víst, að drottinn var þessa nótt hjá honum, að Páll vissi af hon- um þá hjá sér, og heyrði hann tala til sín þessi hug- hreystingar-orð, sem hér eru eftir frelsaranum höfð. Á yfirnáttúrlegan hátt hafði Jesús margsinnis talað við þennan postula sinn áðr. Páll þekkti því fullkiomlega röddina hans; ekki neitt hætt við, að hann villtist svo á sjálfmn sér, að hann gjörði ímyndanir sjálfs sín að orð- um guðs. Einsog postulinn tekr skýrt fram við annað

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.