Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 5
133 tœkifœri hafði hann lengi gengið xneð þá þrá í hjarta að mega flytja fagnaðarboðskapinn um Jesúm í böfuðstað heimsins, Rómaborg, og að ferðast þangað í því skyni hafði liann fastlega sett sér fyrir. Þessu hefir bann nú verið að velta fyrir sér, er bann var í varðhaldið kom- inn og bafði misst frelsi sitt; því nú leit ekki út fyrir, að neitt gæti orðið úr því framar. Og þetta er það fremr öllu oðru, sem veldr sársaukanum í sál bans. En nú er drottinn sjálfr til bans kominn til þess að bugga liann og gjöra bann aftr vonglaðan, meðal annars og sérstak- Iega með þeim fagnaðartíðindum, að þes,si beitasta framtíðarþrá hans skuli fá fullnœgju — honum skuli auðnast að vitna um Jesúm í höfuðstað beimsins, engu síðr en hann þegar hafði gjört þar á aðalbóli gyðing- dómsins í Jerúsalem. Stefnuskránni, sem bann undir leiðslu beilags anda Iiafði sett sér, skal verða framgengt. Það veit bann nú úr þessu með guðlegri vissu; því frels- arinn Jesús Kristr sjálfr befir komið til lians og flutt honum þann gleðiboðskap. Þá er að gæta að því, sem segir frá í binu síðara versi texta vors. Nóttin er naumast liðin, þá er bráð og œgileg dauðabætta rís upp og tekr að vofa yfir Páli, því þegar undir eins í dögun gjörist hið mikla samsœri Gl-yð- inga í Jerúsalem, er þeir strengja þess beit, með dýrum eiði og formælingum, að bragða bvorki þurrt né vott fyrr en þessi, er þeir út af trú hans á Jesúm töldu versta óvin sinn, væri af þeirra völdum af dögum ráðinn. Síð- ar í sögunni sést, að samsœrismenn þessir voru ekki færri en fjórir tugir, og það með, að þeir böfðu presta- böfðingjana og öldungana að bakjarli. Yar því auð- sætt, að hér var fyrir Pál — einsog nú var að öðru leyti bið ytra hag hans komið — við óskaplegt, og frá jarð- nesku sjónarmiði með öllu óviðeiganlegt, ofrefli að eiga. Nú blasir andstœðan stórkostlega í versum textans tveim við augum allra: annarsvegar stórveldið, sem hér á jörðu ákveðr, að Páll skuli bið bráðasta þaggaðr niðr og deyddr; binsvegar heitorð frá drottni af himnum of- an, persónulega honum veitt, um það, að málefni krist- indómsins í liöndum hans skuli verða borgið, — það,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.