Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 24

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 24
152 tveggja ('séra Jóns Bjarnasonar og hr. W. H. PaulsonsJ var ekki út runnin. Sérstakt fagnaöarefni varö það þinginu, er hr. Jón J. Vopni fyrir hönd júbíl-sjóös-nefndar, sem sett var í fyrra ('auk hans voru þeir Björn Walterson og Bjarni Jones í nefndinnij, hefði tekizt að safna fimm þúsundum dollara í þann sjóð einsog í öndverðu var til tekið. Og var nefnd þeirri hjartanlega þakkað fyrir dugnað sinn og fyrirhyggju. Júbíl-sjóðrinn heitir úr þessu heima-trúboðssjóðr kirkjufélagsins. Niðrstaða þessarrar starfsemi er stórkostlegr sigr, einkum er til þess er tekið tillit, að þetta hefir unnizt samfara mestu baráttunni í sögu kirkjufélagsins. Heiðingjatrúboðs-neíndm frá í fyrra bar tvær tillögur fram við- víkjandi framkvæmdum af hálfu kirkjufélagsins, sem henni sýndist rétt að þingið veldi nú um: Annað það, að varið væri á þessu ári 500 dollurum úr heið.trúboðssjóði, til framfœrslu kventrúboða á Indlandi, ungfrú Esburn af danskri ætt (í sambandi við heið.trúboð General Council’s þarj. Hitt það, að vér legðum nú allan heið.trú- boðssjóð voru einsog hann er í hendr nefnd þeirri í General Coun- cil, sem stendr fyrir trúboðinu meðal heiðingja af hálfu þeirrar kirkjudeildar. Hið fyrra varð að samþykkt í þinginu. Heiðingjatrúboðssjóðr kirkjufélagsins var fyrir þing, er féhirð- ir lokaði ársreikningum, orðinn $2,236.18 að upphæð. Síðan—fyrir þing og á þingi—bœttust þar við $63.39. ('Sjá kvittan féhirðis í þessu blaði.J Var sjóðr þessi því áðr en þingi var slitið orðinn $2,299.57. Um rúm þrjú hundruð dollara hefir sjóðrinn því aukizt síðan á kirkjuþingi í fyrra. Að kvöldi sunnudags 19. Júní —þriðja dags frá því, er þingið var sett — flutti séra Kristinn K. Ólafsson á opinberum guðsþjón- ustufundi rœðu um kristniboð meðal heiðingja með orð frelsarans í Jóh. 20, 21 C„Einsog faðirinn hefir sent mig, eins sendi eg yðr“J að texta. í sambandi við það stórhátíðar-erindi leiddi skrifari kirkjufélagsins, séra Friðrik Hallgrímsson, fram að gráðunum kirkjunni einn ungan bróður, Oktavíus Thorláksson, son séra Stein- gríms og konu hans, með þeirri yfirlýsing til safnaðarins, að hann hefði fastákveðið fyrir augliti drottins og með hjálp hans að búa sig menntunarlega og á annan hátt undir heið.trúboðsstarf og á sínum tima fara út í heim í því skyni. Hinn ungi maðr staðfesti þetta með eigin munni, bað um fyrirbœn safnaðar og þings, og forseti kirkju- félagsins bar fram bœn og lagði í Jesú nafni yfir hann blessan. At- höfn þessi var há-alvarleg og einhver dýrmætasti þáttr í júbíl-hátíðar- haldi þessa einstaklega kirkjuþings. Til undirbúnings hinu fyrir- hugaða göfuga starfi verðr hr. Oktavíus, að svo miklu leyti sem hann óhj ákvæmilega þarf, styrktr af kirkjufélagi voru við nám sitt, sem ef til vill tekr hann ein sjö ár. í heiðingjatrúboðsnefndina voru fyrir þetta ár kosnir: séra

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.