Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 17

Sameiningin - 01.07.1910, Blaðsíða 17
145 (Xag: Upp skepna hver, og göfga glöö. j Hér ljómar dýrðlegt drottins liús, hér drottins birta skín. Nú heldr lýðr hjartans fús, ó, herra guð! til þín. Ei lengr daprir drúpnm vér í dauðans eyðimörk. Á hrakning eigi framar fer hin fagra drottins örk. Pyrr Davíðs sonr dýrðarhöll, vor drottinn! reisti þér. En konunglegri’ er kirkjan öll, sem Kristr helgar sér. Hans konungshöll er kirkjan hér, já, kristnin öll sem heild. Af henni aðeins erum vér ein einstök lítil deild. Krists merki sett vér höfum hátt, vér hopa’ ei vildum spor. Vér guðs orð höfum óskert átt, það eitt er heiðr vor. Hér tignarleg guðs tjaldbúð skein í tuttugu’ og fimm ár. Þar lýstu guðs orðs ljósin hrein. Þér lof sé, guð vor hár! Þó býsna-margt hjá oss var að og ófullkomleik háð. En fyrirgef oiss, faðir! það af föðurlegri náð. Þitt ríki, drottinn! öflugt er, vort eigið ráð er valt. Oft vorra ferða fórum vér. Ó, fyrirgef það allt.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.