Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1910, Page 10

Sameiningin - 01.07.1910, Page 10
138 við hve ramman var reip að draga fyrir kirkjufélagið. Löndum vorum fjölgaði óðum um þetta leyti hér í vestr- byggðum. En oss skorti krafta til að breiða boðskap drottins út á öllum þeim svæðum, enda sá andinn, sem þar blés á móti, óðum að verða magnaðri, einbeittari, œstari, því hann vissi sig í bandalagi með samskonar anda á hærri stöðum fyrir austan haf. Árangrslaust leituðum vér liðs í þá átt til móðurkirkju vorrar, þá er verkamannafæðin hér var einna tilfinnanlegust. Var þá sýnt, að engri mannlegri hjálp utan að komandi fyrir félag vort var að treysta. Annað veifið mátti reyndar heyra á kunningjum vorum sumum í hinum íslenzku austrbyggðum, að þeir vonuðu þó nokkurs góðs af kirkjufélaginu; þeir gáfu í skyn, að út af tilveru þess myndi íslenzkt þjóðerni hér fá talsverða lífs-trygging, svo að fyrir ])á sök hyrfi það þó ekki alveg undireins í mannlífshaf álfu þessarrar, einsog sumir nærri því iilakkandi töldu víst; *) en gagn kirkjufélagsins fyrir fólk vort í trúarlegu og siðferðislegu tilliti — eða í sálu- hjálpar-efnum virtist fyrir langfæstum koma minnstu vitund til greina. í seinni tíð liefir svo sem alkunnugt er nýja guð- frœðin og fýlgifiskr hennar biblíu-'kritíkin’ vantrúaða komið til sögunnar hjá oss íslendingum. Þar er van- trúin í hjúpi vísindanna. Og svo þéttofinn er hjúpr sá, að f jöldi kirkjumanna eygir ekki fyrst í stað, og lengi ef til vill, það, sem þar býr undir,—ekki fyrr en hjúprinn er orðinn snjáðr og kominn að því að verða gatslitinn. A fyrstu árum kirkjufélagsins höfðum vér nálega alls ekk- *) 1 „Andvara“ frá 1901 (26. ári) er ritgjörS eftir dr. Þorvald Thóroddsen me8 fyrirsögn: Hugleiðingar um aldamótin . í síöara hluta ritsmiðar þeirrar er þáttr einn, á bls. 42—46, sem vert er aS benda á. Þar gjörir höfund'rinn austanfarir landa sinna og fram- tíöarhorfur .þeirra hér í álfu aS umtalsefni. Þaö, sem hann, jafn- meinhœgr maSr aS eðlisfari, lætr þar út úr sér, er ágætt sýnishorn af dómunum, sem brœ'ðr vorir ekki all-fáir me'ðal heldra fólks fyrir handan sæ hafa svo títt — i nafni eigingjarnrar og ósannrar ættjarö- arástar — fundiö sig knúða til aö kveöa upp yfir menningarbaráttu V estr-tslendinga.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.