Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1910, Page 15

Sameiningin - 01.07.1910, Page 15
. 143 tekr Festus, annar rómverskr maðr, þar við völduin. Þá er fyrir alvöru fariÖ aÖ eiga viÖ mál Páls. Hann skýtr nú máli sínu til keisarans, og það fær framgang. Úr því kemst kann, þótt í böndum sé, þangað sem hann svo lengi — frjáls maÖr — hafði þráð að komast. Hindran- in óyfirstíganlega — hinn fjallhái farartálmi — verðr til þess að hrinda erindsreka drottins áfram — langa leið — alla leið — að hinu setta takmarki. Svona var það með Pál. Svona á það að verða með oss — kirkjufélagskóp vorn. Útaf því, sem fyrir oss hefir komið ervitt, rauna- legt, sárt, grátlegt, á að vilja drottins ekki að verða nein aftrför, heldr þvert á móti mikil og blessunarrík fram- för. Mótspyrnan, sem vér höfum orðið fyrir nú sér- staklega í allra síðustu tíð, á fremr öllu öðru að verða til þess að lyfta kirkjufélaginu upp, veita því um leið stórum aukið víðsýni og hjálpa því á þann hátt langtum lengra áfram en annars myndi. Frá Jerúsalem til Eóm. Frá því eingöngu að boða orð krossins eigin þjóð vorri keima fyrir til þess að vera með í kristniboðinu lengst út á meðal hinna heiðnu milíóna í myrkrinu. Þetta er stefnuskrá vor upp frá þessarri júbíl-hátíð kirkjufélags- ins. Drottinn sjálfr dregr nú merki vort — krossmerkið hans — hærra upp yfir oss en nokkru sinni áðr. Það hefir að undanförnu hjá oss aðeins verið dregið upp í hálfa stöng, því að umhugsanin hefir nálega eingöngu verið bundin við heimastöðvarnar. Nú sé eg flagginu kippt upp í topp. Framtíðar-starfsemi kirkjufélags vors af frelsaranum sjálfum í og með áverkunum, sem það hefir orðið fyrir í stríðinu fyrir málefni hans — blœðandi sárum, er það á sér ber — beint langt langt út framyfir það , sem verið hefir — óraleið út, burt frá sjálfum oss — út að yzta skauti heimsins. Félagið tir þessu að falla inn í fylking með hinu kristna fólki ann- arra þjóða, sem í bœn og trú samfara sjálfsafneitan og fórn eru að vinna að því að leggja heiðna heiminn undir kærleiksstjórn mannkynsfrelsarans Jesú Krists. Héðan í frá á heiðingja-trúboðið — eða kristniboð fyrir utan vorn þjóðflokk —• að vera stórmál á dagskrá hjá oss. Þar með er máli kirkjufélagsins svo að kalla skotið

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.