Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.07.1910, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.07.1910, Qupperneq 26
kandídat og trúboöi hr. Sigrbjörn Ástv. Gíslason og séra Valdemar Briem, hinn kjörni Skálholtsbiskup, sálmaskáldið, sendu bróöurleg ávörp, sem lesin voru á þinginu i heyranda hljóöi. Fleiri kveöju- ávörp til kirkjufélagsins meö heillaóskum voru lesin upp fyrir þing- inu: frá dr. Weidner, forstööumanni prestaskólans lút. í Chicago, dr. Norelius, forseta Ágústana-synódunnar sœnsku, dr. Dahl, forseta Sameinuöu kirkjunnar norsku, og séra Jóni J. Clemens, sem áör heyrði ísl. kirkjufélaginu til, en er nú prestr í Guelph, Ont Hinsvegar höfðum vér þrjá heiðrsgesti hjá oss í þetta skif,ti, sem sátu um hríð með oss á þinginu, einhverja ágætustu og bezt þekktu lærifeðr lútersku kirkjunnar í heimsálfu þessarri. Þaö voru þeir dr. G. H. Gerberding frá prestaskólanum í Chicago, dr. H. E. Jacobs frá Philadélphia, decanus prfestaskólans lúterska þar fMt. AiryJ, og dr. H. G. Stub, frá Hamline prestaskóla í St. Paul, vara-formaðr Norsku synódunnar. Koma þeirra hvers um sig varð þinginu stórkostlegt fagnaðarefni. Þeir ávörpuðu þingiö allir hvaö eftir annað hinum hjartanlegustu og samúðarfyllstu oröum, lýstu hátíðlega yfir því, hvílíkt fagnaðarefni þeim væri það—og þeim mörgu, er þeir væri fulltrúar fyrir—, að kirkjufélag vort stœði á nákvæmlega sama grundvelli trúarinnar og þeir og hefði með guðs hjálp staðizt í hinni hörðu baráttu þeim grundvelli til varnar, Einn þessarra þriggja heiörsgesta, dr. Stub, kom með 500 doll- ara gjöf í júbíl-sjóðinn frá brœðrunum í kirkjufélagi hans. Því miðr varð dr. Gerberding aö fara burt áðr en mesti stór- hátíðar-dagrinn, sunnudagrinn 19. Júní, rann upp. Hinir tveir komu seinna og gátu lengr staðið við. Þrjár guðsþjónustur, einstaklegar og mjög hátíðlegar, voru haldnar í Fyrstu lútersku kirkju þann dýrðlega drottinsdag. Fvrst árdegis eftir kl. hálf-ellefu. Þá var eingöngu sungið úrval úr há- tíðarljóðunum miklu og fögru eftir séra Valdemar Brienj, sem í heild sinni eru prentuð í Minningarritinu. Það úrval látum vér birtast í blaði þessu. Að líkindum hreif þetta vers flesta af oss meir en nokkuð annað: „Krists merki sett vér höfum hátt, vér hopa’ ei vildum spor. Vér guðs orð höfum óskert átt, það eitt er heiðr vor.“ Ritstjóri „Sam.“ prédikaði út af Pg. 23, 11. 12. Sú prédikan birtist öll í blaði þessu. Á fyrsta kirkjuþingi fyrir 25 árum prédik- aði hann einnig, og var partr af prédikan þeirri endrprentaðr (úr „Leifi“J í Júní-blaðinu. Við lok guðsþjónustu þessarrar gjörði forseti kirkjufélagsins þingheimi og söfnuði það kunnugt, að sá, er þá hafði prédikað, væri af Thiel College í Pennsylvania ÖGreenvilleJ útnefndr doktor í guð- frœði. Út af þeim óvænta heiðri talaði J. Bj. enn nokkur orð og bað menn að biðja fyrir sér, að hann ofmetnaðist ekki af þessu

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.