Prentarinn - 01.01.1966, Blaðsíða 5
Þetta tbl. Prentarans er fyrst og
fremst til minningar um Odd
Björnsson og störf hans í þágu
íslenzkrar bókmenningar. Hér er
þó aðeins fátt eitt á blað fest af
störfum hans og lífi og er auk
þess síðbúið sem aldarminning.
Faðir 8 stunda
vinnudagsins
á íslandi
Á fyrstu árum prentarasamtak-
anna, í Prentarafélaginu gamla,
var Oddur Björnsson virkur og
áhugasamur meðlimur. Þá strax
kom í ljós sá brennandi áhugi,
sem hann hafði fyrir menntun
og menningu stéttar sinnar. Síð-
ar, þegar hann er orðinn prent-
smiðjueigandi, má enn glöggt
kenna, að hann er trúr þeirri
æskuhugsjón, að meta menntun
og menningu alþýðumannsins
um aðra hluti fram. Því er það
ekki að ófyrirsynju, að hann
gengur fram fyrir skjöldu og
gerist brautryðjandi á því sviði
að skapa stéttarbræðrum sínum,
prenturum, þau undirstöðuskil-
yrði til menningarlífs, að stytta
vinnudaginn úr 9 stundum í 8
stundir á dag. Um það segir svo
í 25 ára minningarriti Plins ís-
lenzka prentarafélags:
„í miðjum nóvember sendi
stjórn Félags íslenzkra prent-
smiðjueigenda (sem stofnað
hafði verið þá um sumarið af
prentsmiðjueigendum um land
(Framhald á blaðsíðu 37).
ODDUR BJÖRNSSON, pretitmeistari.
PRENTARINN