Prentarinn - 01.01.1966, Blaðsíða 25
Bókagerðarmenn í Noregi sameinast í eitt samband
Óðinn Rögnvaldsson, varaformaður HÍP, segir frá 19. landsþingi norskra prentara
7.— 10. nóvember s.l. héldu norskir prent-
arar 19. landsþing sitt. Hinu íslenzka prent-
arafélagi var boðið að senda þangað áheyrn-
arfulltrúa og sat Oðinn Rögnvaldsson, vara-
formaður félagsins, þingið sem fulltrúi HÍP.
Hann segir hér á eftir frá þvt helzta sem
gerðist á þinginu:
Þingið var sett með hátíðlegri athöfn í
Samfundshuset, en í því húsi hefur Prent-
arasambandið og fleiri verkalýðsfélög skrif-
stofur sínar. Þingsetningin hófst með því að
15 manna hljómsveit frá óperunni spilaði.
Að því búnu bauð Roald Halvorsen, for-
maður Norska prentarasambandsins, þing-
fulltrúa velkomna og fór nokkrum orðum
um þau vandamál, sem norskur verkalýður
væri að glíma við í dag. Því næst söng kór
prentara í Osló nokkur lög og foimaður
minntist látinna félaga.
Þegar kjörnir höfðu verið forsetar og rit-
arar þingsins og kosið í nefndir fluttu er-
lendu gestirnir ávörp. Þeir voru frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Finnlandi, íslandi, Sviss,
Vestur-Þýzkalandi, Austurríki, Hollandi og
einnig var fulltrúi frá Alþjóðasambandi
bókagerðarmanna (IGF).
Hver voru aðalmálin sem lágu fyrir þing-
inu?
Fyrst á dagskránni var skýrsla stjórnar-
innar og reikningar sambandsins. Hvort
tveggja var samþykkt samhljóða. Og þá var
komið að aðalmáli þingsins.
Þetta var mjög sögulegt landsþing, og
ástæðan var sú, að á dagskrá þess var til-
laga um sameiningu þriggja höfuðsambanda
bókagerðarmanna í Noregi — þ. e. a. s.
Prentarasambandsins, Bókbindarasambands-
ins og Sambands offsetprentara — í eitt
samband, Norsk Grafisk Forbund. Og auð-
vitað vakti það mál mesta athygli okkar cr-
lendu gestanna.
Roald Halvorsen skýrði frá þeim viðræð-
um sem fram höfðu farið milli samband-
anna þriggja. Norska prentarasambandið
liafði haft forgöngu um fyrstu viðræður
félaganna árið 1964. Tveir menn frá hverj-
um aðila voru þá valdir til að ná samkomu-
lagi — og það tókst. Þetta 19. landsþing
Prentarasambandsins samþykkti aðildina
fyrir sitt leyti. Stofnþing Norsk Grafisk
Forbund var svo haldið 13. desember s.l. í
stjórn þess eru kjörnir 13 menn: 4 frá offset-
prenturum, 4 frá bókbindurum og 5 frá
prenturum. í miðstjórn sambandsins eru 43
menn. Auk 13 stjórnarmanna eru kosnir 10
frá Bókbindarasambandinu, 8 frá Sambandi
offsetprentara og 12 frá Prentarasamband-
inu. Er þá höfð hliðsjón af félagatölu hvers
sambandsaðila. Bókbindarar eru um 4500 í
Noregi, offsetprentarar um 1900 og prent-
arar nálægt 6500.
Hver er ástæðan fyrir sameiningu þessara
þriggja sambanda?
Höfuðástæðan er að sjálfsögðu þær miklu
tækniframfarir, sem orðið hafa í prentiðn-
inni að undanförnu. Ný tækni hefur brotið
niður gömlu landamærin milli offsetprent-
aranna og setjaranna, og nú eru að verða
algengar prentvélar, sem bæði eru gerðar
fyrir offsetprentun og hæðarprentun. —
Tækniþróunin hefur sem sé valdið því að
þessar tvær starfsgreinar nálgast mjög hvor
aðra — fara hvor inn á annars svið. Það
hljóta því að verða árekstrar. Þá er vandinn
að ná samkomulagi um verkaskiptinguna. í
Noregi hefur samstarfið milli prentarasam-
bandanna verið sérlega gott. Sú góða sam-
PRENTARINN
21