Prentarinn - 01.01.1966, Síða 27
Frá landsþivgi Norska prentarasambandsins.
sem ekki voru í nefndum höfðu góðan tíma
á kvöldin.
Að þinginu loknu var haldið mikið hóf
uppi á Frognesetret. Norðmennirnir köll-
uðu það „Afslapningsfest“, og þeir kunnu
sannarlega að slappa af. Menn voru líka ný-
endurkjörmr og kátir! — og þetta var hin
ágætasta veizla.
Að morgni 11. nóvember fórum við
hjónin til Kaupmannahafnar. Hartvig
Mayer, gjaldkeri Danska prentarasambands-
ins tók á móti okkur, bauð okkur út að
borða þá um kvöldið og síðan á skemmti-
staði. Daginn eftir sýndi Mayer mér húsa-
kynni Prentarasambandsins að Martinsvej 8.
Þeear við sjenemm geonum eina skrifstofuna
rak éo augun í eyðublöð sem vöktu athygli
mína. Þetta voru umsóknareyðublöð um
styrki til endurhæfingarnáms. Þarna var um
að ræða námskeið í umbroti á filmusátri,
filmusetningu, teletypesetningu o. þ. u. 1.
Námskeiðin eru haldin af forgöngu Prent-
arasambandsins. Ég spurði Mayer hvort
hann teldi möguleika á því að íslenzkir
prentarar gætu sótt slík námskeið í Dan-
mörku. Hann sagðist því miður ekki búast
við því. Danska ríkið kostaði þessa endur-
hæfingu að miklu leyti, svo vart kæmi til
greina að íslendingar gætu notið þar góðs
af.
Hvernig litu Danir á þær skipulagsbreyt-
ingar, sem norskir bókagerðamenn voru að
framkvæma?
Ég spjallaði örlítið við Henry Nielsen,
formann Danska prentarasambandsins, og
var hann hrifinn af því sem gerðist á lands-
þingi norsku prentaranna. Danir hafa sjálfir
verið að reyna að mynda samband bóka-
PRENTARINN
23