Litli Bergþór - 01.04.1990, Page 5
Svavar Gestsson, menntamálaráðherra.
Unnar Þór Böðvarsson, skólastjóri.
mötuneytið yrði til frambúðar í Ara-
tungu og húsið var minnkað og
þrengt að svona á allan hátt sem
við töldum mögulegt og sett á tvær
hæðir. Þannig tók það nokkuð
langan tíma á teikniborðinu að
aðlaga þetta greiðslugetu hrepps-
ins og okkar aðstæðum. Svo var
það árið 1987 að fyrsta fram-
kvæmdafjárveitingin fékkst frá
ríkinu og þá hófumst við handa.
Við réðum Verkfræðistofu Siguröar
Thoroddsen til að sjá um alla
verkfræðilegar hliðar málsins og
það var hafist handa við jarðvinnu.
Boðin var út jarðvinnan og
frágangur á lóð. Róbert Róberts-
son á Brún tók það að sér. Sökklar
voru steyptir líka um haustið og
sáu heimamenn um það. Síðan
var það í júní 1988 að húsið var
boðið út, til að gera það fokhelt.
Það bárust 10 tilboð. Nú var
byggingarnefndinni mikill vandi að
velja úr, en niðurstaðan varð sú að
samið var við SH-verktaka í
Hafnarfiröi og byrjuðu þeir í nóvem-
ber, fyrir 14 mánuðum síðan.
Veturinn í fyrra var ekki sá albesti
til að standa í því að byggja upp
svonahúsog nákvæmlegafyrirári
síöanurðusmiðirnirað berjaklaka
og moka snjó af þessari plötu sem
við stöndu m á til að koma steypunni
fyrir. Þetta haföist nú allt. Síðan
var það í framhaldi af þessu þegar
við sáum húsið rísa upp, þá fór að
koma upp sá vandi fyrir bygg-
ingarnefndina hvað gera skyldi.
Skyldi klára húsið fokhelt og bíða
þangað til safnaðist í hreppssjóð
eða halda áfram? Niðurstaðan
varð sú að samið var við SH-
verktaka um lokafrágang á húsinu.
Þeir skyldu skila því nú í janúar.
Rökin fyrir þessum byggingar-
hraða voru þrjú: Okkurvantaðitil-
finnanlega skólahúsnæði. f öðru
lagi er mjög dýrt að vera með fokhelt
hús og bíöa með það í nokkur ár og
vera með allan fjármagns-
kostnaðinnáherðunum. Ogíþriðja
lagi vantaði leikskólann hérna til-
finnanlega hús. Hugmyndin ersú
og búið að ákveða það að hann fari
í gamla barnaskólann.
Sumirsegja að það hafi bara verið
ein ástæða fyrir þessu og hún er
nokkuð góð, og hún er sú að það
verða sveitastjórnarkosningar
hérna í vor. Hún getur verið alveg
eins gild og margt annað. En í
sambandi við það get ég sagt að
það hefur verið algjör samstaða
hjá öllum hér í sveit að standa
svona að málum.
Þá er að geta þeirra sem hafa að
þessu unnið. í byggingarnefnd
hafaverið, aukmín, Gísli Einars-
son.oddviti, oghefurhannséðum
peningamálin, sem hlýtur að hafa
verið létt verk, eða við skyldum
ætlaþað. Sveinn A. Sæland.sem
varhérnakynnir, ereinnig íbygg-
ingarnefnd. Eins og fram hefur
komið þá var dr. Maggi Jónsson
arkitekt og Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen sá um verkfræðilega
hlutannogNarfiHjörleifsson hefur
verið þeirra tengiliður. Eftirlits-
maður á vegum verkkaupa hefur
verið allan tímann Kristinn Antons-
son, bóndi í Fellskoti. Byggingar-
stjóri var Gunnar Einarsson frá SH-
verktökum. Yfirsmiður var Einar
P. Sigurðsson hér á Norðurbrún.
Múrverk annaðist Sigurður Heimir
Sigurðsson. Pípulagnir: Snittvélin,
Hafnarfirði, svoégtelji nú þá helstu
upp. Raflagnir: Rafver í Þorláks-
höfn, loftræstibúnað: K.K. blikk í
Kópavogi, dúkalögn: Steinþór
Eyþórsson Garðabæ og Máln-
ingarverk s.f. Reykjavík sá um
málninguna. Égvilnúþakkaöllum
þessum aðilum fyrir vel unnið verk
og gott samstarf. Ég vil líkaþakka
skólastjóranum og kennurum fyrir
mikið umburðarlyndi, því það fór
ekki hjá því að síðustu vikurnar
blandaðist þetta allt saman. Það
voru kennarar, málarar og nem-
endur og smiðir hér á göngunum
og varla hægt að sjá hver væri
hvað en tókst allt saman með
ágætum. Arkitekt og verktaka vil
ég þakka sérstaklega og ég gef
þeim bara mín bestu meðmæli eins
oghandbragðiðbermeðsér. Bygg-
ingarnefndin varoft dálítið leiðinleg
við þá og við vorum kröfuharðir.
Við vildum fá vandað, ódýrt og gott
hús. Þessum kröfumernúdálítið
erfitt að fullnægja en ég veit ekki
nema það hafi tekist að mörgu
leyti. Að lokum vil ég bara þakka
þeim sem að þessu unnu og óska
Litli - Bergþór 5