Litli Bergþór - 01.04.1990, Síða 16
Fjölbraut
í fjölbrautaskólum er ekki
notast við bekkjakerfi eins og í
öðrum skólum. Fyrst er brautin
valin sem ætlunin er að stunda
nám á, s vo velur maður fög sem
heppilegt er talið að byrja með.
Þrátt fyrir að margir séu á sömu
braut og byrji á sama tíma í
skólanum, hefur hver nemi sína
eigin stundatöflu. Ástæðan er
sú að menn velja misjafnar
greinar og einnig það að í grunn-
fögum eru s vo margir fyrstu tvö
árin að þeim er skipt í marga
hópa, þó að þeir séu allir að læra
það sama.
Helstu kostir við fjölbrauta-
skólakerfið eru að um margar
brautir er hægt að velja, hægt er
að fara bæði í verknám og einnig
bóklegt nám. Nemendur geta
ráðið stundum í töflu og stunda-
fjölda og einnig hvaða fög eru
tekin þetta árið og hvað næsta.
Þetta kerfi hentar liTca mjög vel
fyrir þá sem hafa staðið sig vel
því að þeir geta valið hraðferð
og verið búnir í skólanum á
UR KOSNINÍiALOÍíUM
undan þeim sem fara hægar.
Hægt er að fara hraðar yfir í
íslensku, dönsku, ensku og
stærðfræði.
Ef svo illa tekst til í náminu
að nemandi fellur þá er hægt að
halda áfram á s ama hraða í öllum
fögum þó að illa gangi í einu.
Síðan er hægt á næstu önn að
taka upp þau fög sem menn hafa
ekki staðist lámarkskröfur í.
Ef nemandi hefur ekki efni á
að vera í skólanum öll fjögur
árin í einu, er lítið mál að taka
helminginn og halda síðan áfram
seinna, enda er fólk á mjög
misjöfnum aldri í skólanum.
Helstu gallar eru að
nemendur innan skólans
kynnastlftið. Þaðervegnaþess
að verið er í einum tíma með
þessum nemendum og í öðrum
tíma með allt öðrum.
Mönnum hættir til að gleyma
sér í þessu kerfi vegna þess að
það er enginn sem skipar þeim
að fara í þetta mörg fög, heldur
eru nemendur sjálfráðir með
III. kafli sveitarstjómarlaga er um kosningu sveitarstjóma.
13. gr. er á þessa leið: (Skýringar í svigum.)
Ingvi.
það. Sumir nemendur átta sig
kannski á því eftir tvö ár í
skólanum að þeir hafi svo að
segja ekkert lært.
Þessi skóli hentar þeim illa
sem eiga erfitt með að ráða sér
sjálfir og einnig þeim sem eru
latir, vegnaþess aðþaðerenginn
sem rekur á eftir nemendum.
Félagslíf: Þessi skóli býður
upp á mjög lítið félagslíf, vegna
þess að nemendurþekkjastlítið
og strax að loknum skóladegi
fer hver til síns heima. Þeir sem
eiga heima á Selfossi ganga
heim en þeir sem eiga lengra að
fara, fara með rútum.. Faraþær
til Hveragerðis, Þorlákshafnar,
Eyrarbakka, Stokkseyrar og
einnig ganga rútur í Rangár-
vallasýslu. Margir koma þó á
eigin bílum enda er bílastæða-
vandamál þar eins og í miðborg
Reykjavikur.
Ingvi Þorfinnsson.
-Kjörtímabil sveitastjórnar er fjögur ár. Almennar sveitastjómarkpsningar fara fram síðasta laugardag í maímánuði (nú
26.) sem ekki ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu. Heimilt er, að ósk sveitarstjóma, að fresta kosningum í
sveitarfélögum, þar sem færri en 3/4 hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúnum, til annars laugardags í júní (nú 9.). Ósk
um frestun kosninga skal hafa borist ráðuneytinu fyrir 1. apríl kosningaársins.
Nýkjörin sveitarstjóm tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag.-
Litii - Bergþór 16