Litli Bergþór - 01.07.1992, Síða 6
Eins og mér sýnist
Síðastliðinn vetur hefur að mínu mati verið afburða
skemmtilegur. Hér hefur félagslífið verið með svo
miklum blóma að furðu sætir.
íþróttaæfingarnar sígildu hafa átt sinn sess að
venju, og var farið oft með börnin í keppnisferðir.
Söngur hefur í fyrsta skipti s.l. 9 ár blómstrað innan
veggja skólans, enda lærður tónlistarmaður í
forsvari fyrir honum. í Skálholti var líka mikið sungið
bæði börn og fullorðnir. Farið var í æfingarbúðir
m.a. á Laugarvatn með börnin, og var það að sögn
þeirra sem voru þar mjög skemmtilegt.
Ungmennafélagði bauð börnunum úr eldri bekkjum
skólans, að setja upp leikrit með leikstjórn og öllu
tilheyrandi, og varð árangurinn ótrúlegur enda lá
mikil vinna Hafdísar í Friðheimum og Guðrúnar á
Daltúni auk leiksstjóranna tveggja, á bakvið þann
árangur.
Virkni í skólanum var líka með miklum blóma,
borðtennismót, skák, dans og eflaust annað sem ég
tók bara ekki eftir og man ekki að telja upp lengur.
Þorrablót var haldið á vegum skólans fyrir
unglingana og tókst það að venju mjög vel.
Hestamannafélagið bauð börnum og fullorðnum
uppá reiðnámskeið í vetur og sóttu það margir, og
samhliða var haldið vetrarmót, eða stigakeppni og
mættu keppendur þrisvar með mánaðar millibili til
að keppa og safna stigum.
Árshátíð unglinga þriggja hestamannafélaga var
haldin og var þáttaka krakka úr Loga mest á þeirri
skemmtun og tókst hún í alla staði vel.
Firmakeppni Loga var haldin í byrjun júní þótt hún
færi eflaust fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum
vegna veðurs.
Ferðafélagar úr Loga
í Fremstaveri
Farið var í tveggja daga hestaferð í Fremstaver
þann 20. júní s.l. á vegum Loga og fóru alls 29
manns í ferðina bæði ungir og aldnir og var hún
mjög ánægjuleg.
En mitt í allri þessari starfsemi og virkni gerðist
nokkuð sem ég undrast mikið hér í sveitinni og ég
hef orð á því nú vegna þess að þetta er ekki í fyrsta
skipti sem ég verð vör við álíka.
í mars fóru að heyrast það sem ég kalla
niðurrifsraddir. Fleiri en einn sögðu það í mín eyru
að það væri alveg agalegt hvað börnin hefðu mikið
að gera. Virkni þeirra kæmi niður á náminu og það
mættu bara ekki vera svona mörg tilboð í gangi
barnanna vegna. Þetta væri alls ekki hægt.
Svona tal undrast ég mjög og velti því fyrir mér
hvort þeir sem þetta segja gera sér grein fyrir
hverslags nám það er að vera virkur í félagsstörfum.
Hvað læra t.d. börnin á því að æfa heilt leikrit og
flytja það með sóma fyrir fullu húsi áhorfendum? Ég
sá að margir lærðu framsögn, aðrir lærðu að vinna
undir aga, sumir lærðu að lesa og öll lærðu þau
eflaust að taka tillit hvert til annars. Flest lærðu
eflaust að þau þyrftu að skipuleggja sinn tíma, enda
er það ein af forsendunum fyrir því að fólk geti
stundað félagslíf að einhverju viti. Það barst t.d. í
mín eyru að leikstjórinn hefði bent ungu leikurum á
að þau gætu notað biðtímann sinn til að lesa
námsbækurnar og sumir gerðu það.
Ég hef oft tekið eftir álíka niðurrifstali hvað varðar
virkni hinna fullorðnu hér í sveitinni. Ekki er það
sjaldan að ritnefnd Litla-Bergþórs fær gagnrýni á sig
fyrir blaðið, það vanti í hann yngra efni frá yngri
höfundum, en á sama tíma hefur ritnefnd Litla
Begga marg reynt að virkja fólk til að skrifa greinar,
hugleiðingar, viðtöl, fá skólann til að efla skrif í
blaðið o.s.frv. Blaðið litast því óneitanlega af þeim
sem skrifa í það en ekki þeim sem gagnrýna það
sem illa er gert.
Mér finnst alltaf merkilegt þegar fólk treystir sér til
að gagnrýna það sem gert er af öðrum, en nennir
svo ekki að breyta hlutunum í þá átt sem það vill
sjálft.
Við verðum að gleðjast yfir því sem gert er hér og
styðja við það hvort sem það er Ungmennafélagið,
skólinn eða einstaklingar sem sýna frumkvæði í
störfum sínum og hugmyndum. Það er auðvelt að
þreyta þá sem eru fullir af orku fyrir aðra, og vilja
stuðla að fjölbreyttu mannlífi hér í sveit með því að
rífa niður það starf og frumkvæði sem þetta fólk
sýnir. Sveitin og samfélagið er ríkt í dag, af ungu og
atorkusömu fólki. Sýnum því samstöðu og hættum
öllu nöldri, um að aðrir séu ekki eins og þeir eiga að
vera.
Ég skora á fólk að horfa fyrst í eigin barm ef það er
ekki ánægt með gang mála, og leggja því þá lið að
breyta því sem ekki er nógu gott, en hætta nöldrinu
og niðurrifinu.
Drífa
Litli - Bergþór 6