Litli Bergþór - 01.07.1992, Side 12
Heilbrigðismál
fyrir 50-60 árum
Árið 1930 var héraðslæknum gertað skila skýrslum um starfsemi sína. Við skoðitn íLaugarási nýlega,
kom í Ijós að afrit afþessum skýrslum eru til, og við yfirlestur sýndist mér að ýmislegt það, sem þar
ber á góma gœti verið fróðlegur og skemmtilegur lestur.
Það sem nú verður birt er úr skýrslum frá 1931-40. Höfundur þeirra ársskýrslna sem hér er birtur
úrdráttur úr er Olafur Einarsson.
Hann erfæddur 1895 og kom sem héraðslæknir í Grímsneshérað 1932 með búsetu í Laugarási og
starfaði hér til 1947 er hannflutti til Hafnaifjarðar. Hann héltþó tryggð við Tungurnar og hefur verið
með sumarbústað í Laugarási allt síðan. Þar hefur hann áisamt fjölskyldu sinni ræktað upp
myndarlegan trjáreit sem þekktur erfyrir sérstaklega stórvaxin aspartré.
Olafur Einarsson andaðist íHafnarfirði í byrjun júní 1992..
Reynt var að halda sig við frumtextann en augljós pennaglöp leiðrétt.
Skýrslur þessar eru allar gerðar eftir ákveðnu formi þar sem kaflarnir heita:
I Arferði og almenn afkoma.
II Fólksfjöldi, barnkoma og manndauði.
III Sóttarfar og sjúkdómar(4 stafliðir).
IV Barnsfarir.
V Slysfarir.
VI Fávitar.
VII Yms heilbrigðismál.
Það sem hér er birt er mest útr köflunum árferði og almenn afkoma og ýms heibrigðismál.
Skýrslugerðþessari var hœtt 1962 og nú eru einungis sentyflit um aðsókn að heilsugœslustöðinni og
starfsfólk þar.
Eins ogfram kemur í texta hefur ársskýrsla 1930 verið skrifuð en hún hefur ekki fundist.
PS
Grímsneshérað 1931.
Ársskýrsla.
Yfirlit yfir heilsufar og heilbrigðismál.
Útbreiddir sjúkdómar og alvarlegir ekki meö meira móti
á árinu að undantekinni taugaveikinni er kom fyrir í 2
hreppum.
Þó engin sé sullaveikur í þessu héraði, tel ég
hundahreinsanir gerðar óvandvirknislega. Menn fást
treglega til þess að gera þetta starf og ávallt er verið að
skipta um þá. Hvergi eru mér vitanlega
hundahreinsunnarkofar. Hundumvirðiststundumhleypt
út án þess að líkur séu fyrir því eða trygging fyrir að þeir
hafi nóg hreinsast eftir meðalainngjöfina. Ber það því
við að hundarnir virðist vera að hreinsast eftir að þeir
eru komnir heim til sín.
Um húsakynni alþýðu vísast til fyrri ársskýrslu. Hafa
ekki orðið miklar breytingar yfirleitt. Fremur virðist hafa
orðið hlé á vegna kreppunnar, þó nokkuð hafi verið
byggt af húsum áárinu. Það er einkum ein sveit í þessu
héraði sem geta verður um í þessu sambandi: það er
Laugardalur. Hafa á þessu ári (1931) og 1930 verið
raflýstirog rafhitaðir6bóndabæiríþeirri sveit. Másegja
að þetta séu orðin önnur býli og annað líf þar og það
auðvitað til batnaðar. í Grímsnesi er einn bær raflýstur
og hitaður, í Biskupstungum tveir auk barnaskólans.
Versturerkuldinn íbæjunum. Margarvistarverurgætu
verið nokkurnveginn viðunandi ef betur væri séð fyrir
sæmilegri hitun. Ég hefi getið þess ífyrri ársskýrslum að
sumstaðar hafi verið tekið uppá því að leiða heitu vatni
frá eldavélinni sem miðstöð. Er það betra en ekki þó
verður þetta varla fullnægjandi bæði vill hitinn verða
misjafn og ónógur í flestum hitavélum þó eru að sögn til
hitavélar sem sérstaklega eru gerðar í þessu skyni.
Þrifnaður inni í bæjum þarf að batna. Finnst méreinsog
ég hefi áður getið um, hin nána umgengni fólks við
hundana og það hvað þeim er lítið bægt frá því að vaða
óhreinum hvenær sem þeim sýnist inn í dvalarstaði
fólks, eiga drjúgan þátt í því hve illa gengur að þrífa
bæina. Fráræzla er víðast léleg. Vatnsleiðsla færist þó
í vöxt. Að í þrifnaði sé fremur um framför að ræða virðist
mér útsjón (og framkoma) unga fólksins bera vott um
yfirleitt. Virðistþaðíþessumefnumverafremramiðaldra
og eldra fólki. Viðuværi alþýðu er sæmilegt fólkið lítur
vel út og hér finnst ekki skyrbjúgur. Vínnautn er lítil.
Miklar f ramfarir í skóla á seinni árum. Hafa verið byggðir
tveir ágætir barnaskólar annar að Flúðum í
Hrunamannahrepp hinn í Reykholti í Biskupstungum.
Er falleg sundlaug við þann síðarnefnda að vísu
óyfirbyggð ennþá. í Grímsnesi er kennt í stóru
samkomuhúsi, stórum sal. Má kallast óviðunandi eins
og það er. í Laugardal er einnig farkennsla. Vegna þess
hve víða er raflýst og hitað verður það sæmilegra.
Litli - Bergþór 12