Litli Bergþór - 01.07.1992, Blaðsíða 14
því að vera góð en þar kemur til greina skuldir frá fyrri
árum og erfið verslun. Skortur þekkist hér hvergi.
Sóttarfar og sjúkdómar.
Heilsufar var töluvert lakara þetta ár en árið fyrir. Voru
það einkum influenzan og kíkhóstinn sem ollu því.
Ennfremur mænusóttin síðari hluta ársins.
Influenza.
Hún barst hingað í marsmán. frá Rvík. Fór um aiit
héraðið á skömmum tíma og var á slæðingi frá í júní.
Nokkur tilfelli af lungnabólgu komu uppúr henni og 1
barn ertalið dáið úr influenzu. Þó er vafasamt hvort ekki
hefði átt að skrifa það á reikning kíkhóstans sem það
fékk nær samtímis.
Kíkhósti.
Kíkhósta varð fyrst vart í apríl en náði ekki verulegri
útbreiðslu fyrr en í maí. Voru sýkingar flestar í þeim
mánuði. Fór svo að draga úr honum og var að mestu
hættur að sýkja í ágúst.
Mænusótt.
Mænusótt barst hingað frá Rvík í ágústmán með
fjölskyldu sem kom hingað til sumardvalar, sýktust 8
börn af 11 á sama bænum (tvö heimili) öll mjög vægt.
í október sýktust 2 börn á heimili skammt þaðan og dó
annað þeirra á 1. sólarhring. Loks sýktust 2 nemendur
á Laugarvatnsskóla og 1 barn á bæ í nágrenni hans og
lömuðust allir þessir sjúklingar lítið eitt.
Kvillar skólabarna.
Algengasti kvillinn voru tannskemmdirnar. Óþrif höfðu
minnkað um helming frá því árið fyrr og er það
áreyðanlega eftirlitinu að þakka. 2 börn höðu áður verið
berklaveiken nú hættulausog leyfðskólavist. Síðastliðið
sumar var gerður leikvöllur við Reykholtsskóla í
Biskupstungum. Er það grasvöllur 16 x 80 metrar að
flatarmáli.
Ýms heilbrigðismál.
í Laugarvatnsskóla var hjúkrunarkona yfir skólatímann
er það til mikilla bóta því margt kemur fyrir á svo
mannmörgu heimili sem hefur á 2. hundrað manns.
Hefur það oft sparað læknisvitjanir því oft má komast
af með að tala við læknirinn í síma.
Kvenfélag Biskupstungna hefur ráðið ólærða
hjúkrunarstúlkuoglánarhanaáheimili þarsemveiknidi
koma fyrir og þess er þörf.
Ég gat þess í skýrslu minni árið 1932 að nokkuð beri á
heirmabrugguðu áfengi. Nú hefur það horfið úr sögunni
eða af markaðnum a.m.k. eins og búast mátti við er
aðflutningsbannið var afnumið. Vínnautn hefur alls
ekki aukist síðan eftir því ég best veit. Það kemur fyrir
nú eins og áður að menn sjást kenndir á samkomum.
En mér erekki kunnugt um nokkurn mann í mínu héraði
sem hefur beðið heilsufarslegt tjón af vínnautn.
1936.
Árferði og almenn afkoma
Árferði mátti heita gott. Veturinn frá nýári mildur, vorið
að vísu kuldasamt svo tún spruttu í lakara lagi.
Heyskapur í meðallagi eða vel það. Afkomaalmennings
síst lakari en 1935. Efnahagur bænda stendur völtum
fótum en enginn þarf að líða skort.
Fólksfjöldi, barnkoma og manndauði.
Héraðsbúum hefur fækkað lítilsháttar vegna
burtflutnings. Barnkoma og manndauði svipað og
undanfarandi ár.
Sóttarfar og sjúkdómar.
Heilbrigði á árinu hefur verið líkt og árið 1935 nokkuð
kvillasamt á tímabilinu maí-ágúst voru það einkum
mislingarnir sem áttu sök á því.
Ýms heilbrigðismál.
Sjúkrasamlög eru engin í héraðinu ennþá.
Húsbyggingar hafa verið með mesta móti á árinu, eru
það mest steinsteypu hús.
Hreinlæti virðist mér í sæmilegu lagi víðast. Fæði
manna er ábótavant í því að nýmeti vantar langa tíma
á árinu. Mjólkursala er hér almenn og fer meðferð
hennar batnandi. Er það mikið vegna flokkunnar hjá
búunum, allir keppast við að hafa mjólkina í fyrsta
flokki.
Áfengisnautn er lítil helst utanhéraðsmenn á samkomum
hér sem neyta áfengis svo úr hófi keyri.
1937.
Árferði og almenn afkoma
Árferði var með lakara móti þetta ár. Veturinn fremur
harður og sumarið svo votviðrasamt að með fádæmum
þótti. Töður hirtust ekki almennt fyrr en í byrjun
september og þá stórskemmdar sama var að segja um
úthey. Reynt var að bæta úr þessu með
fóðurbætiskaupum sem hefur mikinn kostnað í för með
sér. Hagur bænda hefur ekki batnað af þessum
ástæðum þrátt fyrir gott sölu ár. Tjón af völdum
mæðiveikinnar hefur orðið tilfinnanlegt í tveimur
hreppum héraðsins og er yfirvofandi í hinum
hreppunum.
Ýms heilbrigðismál.
Kaffineysla ertöluverð mætti vera minni. Tóbaksnautn
nokkur, þó álít ég að hún sé ekki eins mikil og f
sjóþorpum og kauptúnum. Stúka var stofnuð s.l. haust
í Biskupstungnahreppi.
1938
Árferði og almenn afkoma
Árferði með betra móti og afkoma almennings batnandi.
Fólksfjöldi, barnkoma og manndauði.
Fólkinu fækkar heldur í héraðinu þó er ekki mikið um að
fólk flytji burt.
Fæðingum fækkar en manndauði helst svipaður.
Sóttarfar og sjúkdómar.
Taksótt.
Eitt tilfellið er mér sérstaklega minnisstætt. Var það
piltur um tvítugt sem veiktist í byrjun júlí uppi á öræfum
sunnan Langjökuls þar sem hann var að vinna við
mæðiveikisgirðinguna ásamt fleiri mönnum. Fór ég til
hans á fjórða degi . Lá hann í tjaldi með óráði og 40°
hita. Reynt var að hita upp tjaldið með primus sem spilti
loftinu mjög. Lét ég tjalda öðru stærra tjaldi utanyfir hitt
Litli - Bergþór 14