Litli Bergþór - 01.07.1992, Page 15
Heilbrigðismál fyrir 50-60 árum frh.
tjaldið og kynda primusinn á milli tjaldanna. Við þetta
batnaði loftið í innra tjaldinu og hitinn varð jafnari þar
inni. Hiti piltsins féll á 8. degi og var hann síðan fluttur
3 dögum síðar heim til sín á kviktrjám, var það 6 stunda
ferð. Pilturinn var lengi að ná sér sem eðlilegt var.
Kvillar skólabarna.
Tannskemmdir eru mjög algengar. Lús og nit alltof
algeng. Eru það alltaf sömu heimilin sem þau koma frá.
Slysfarir.
Langalvarlegasta slys ársins varð 20. ág er bíll með 5
manns keyrði niður í Tungufljót framan við brúna á
þjóðveginum og drukknuðu 3 konur sem sátu í aftursæti
bílsins, en tveir karlar komust af er voru í framsætinu.
Virðist það ganga kraftaverki næst því fljótið er þarna
mjög djúpt og straumhart.
Ýms heilbrigðismál.
Á þessu ári var gamli læknisbústaðurinn í Laugarási
rifinn og vandað steinhús byggt í staðinn. Er eitt herbergi
í húsinu ætlað fyrir sjúkling ef með þarf.
Gróðurhúsum fjögar á hverju ári einkum í Biskups-
tungum. Enn eru aðallega ræktaðir tómatar í þeim. í
ráði er að auka þessa rækt stórlega á næsta ári.
Kartöflurækt er víðast í góðu lagi og grænmetisrækt
nokkur.
Ókostur við mjólkurbúin er að flestir bændur freistast til
að láta alla mjólkina í búin svo nota verður smjörlíki
eingöngu á heimilinum. Helst ætti ekkert smjörlíki að
vera til.
Búið sendir hverjum framleiðanda heim osta og skyr í
hlutfalli við mjólkurmagn hans og er það höfuðkostur
því annars mundu þessar vörur ekki vera notaðar á
heimilunum að neinu ráði.
Íþróttalíf er nokkurt. Leikfimi er kennd við flesta
barnaskólana sund sömuleiðis. Heitar laugar eru í 4
hreppum héraðsins.
Kirkjureru margar í mínu héraðieigaaðveraa.m.k. 14.
Ein þeirra fauk í ofviðri fyrir 2 árum. Þar fyrir finnst nú
engin kirkja. Var hún í bændaeign. Sumar þessar
kirkna eru lítið sem ekkert uþphitaðar.
1939.
Árferði og almenn afkoma.
Árferði með besta móti. Sumarið hið besta sem elstu
menn muna. Afkoma og hagur almennings hefir aldrei
verið betri, þau tæp 8 ár, sem ég er búinn að verta hér.
Undantekningu frá þessu má telja þau svæði sem
mæðiveikin hefir leikið harðast. En opinberar aðgerðir
létta þar stórum undir.
Fólksfjöldi, barnkoma og manndauði.
Fólkinu hefur fjölgað á árinu í fyrsta sinn nú um allmörg
ár. Manndauði svipaður og undanfarin ár. Barnkoma
með minnsta móti.
Sóttarfar og sjúkdómar.
Heilsufar ágætt allt árið. Erfið viðfangs reynast óþrifin.
Einstöku heimili hafa alveg upprætt hjá sér lúsina.
Samt eru nokkur eftir ennþá.
Sá siður hefur verið tekin upp í flestum skólum að gefa
börnum lýsi.
Ýms heilbrigðismál.
Ennþá eru engin sjúkrasamlög í héraðinu, nema
nemendur í Laugarvatnsskóla skipta jafnt með sér
öllum sjúkrakostnaði yfir skólaárið. Landlæknir veitti á
árinu kr. 400 úr læknishéraðssjóði Grímsneshéraðs til
kaupa á hús- og hjúkrunargögnum í sjúkraherbergið í
læknisbústaðnum.
Byggingaöld hefir verið mikil hér undanfarin ár. Mörg
íbúðarhús hafa verið byggð, einkum úr steinsteypu og
nokkurúrtimbriennfremurútihús, hlöður, fjós, haughús
og safnþrær.
Raflýst hefir verið á tveimur heimilum með vatnsafli og
nokkrir bændur hafa fengið vindmyllur til raflýsingar.
Reynast þær vel einkum hin ameríska gerð þeirra. Þær
framleiða lágspennt rafmagn 6-24 volt.
Mataræði fólks er víðast sæmilegt, þó æskilegt væri að
kostur væri á nýmeti lengri tíma árs en nú er. Kartöflurækt
var með meira móti s.l. sumar, grænmetisrækt
sömuleiðis.
Símasamband er víðast í héraðinu sæmilegt, þó vantar
síma í efri hluta Hrunamannahreþps og eystri Tunguna
tilfinnanlega. Sveitasíma er verið að koma á í
Gnúpverjahreppi er komin á nokkur heimili en búast
má við að þær framkvæmdir stöðvist vegna stríðsins.
SKALINN
Laugarási
kaffiveitingar - ís - pottablóm - íslenskt grænmeti
opið alla daga til 10 ágúst kl. 14 - 19.
Eftir 10. ágúst aðeins opið um helgar frá kl. 14 - 19.
Litli - Bergþór 15