Litli Bergþór - 01.07.1992, Page 17
Ritgerð úr skólanum
Leikrit
Eva Sæland 8. bekk.
í þessari ritgerð ætla ég að fjalla um leikritið ÞÚ ERT í BLÓMA LÍFSINS, FÍFLIÐ ÞITT. senr
krakkarnir hér í Biskupstungum settu upp á dögunum. Þetta byrjaði þannig að leiklistardeildin hélt fund
niðri í Skúta í Aratungu og auglýsti að leiklistaræfingar yrðu settar í gang ef nægur áhugi yrði á því
verkefni. Yfir 30 krakkar mættu á fundinn og létu skrá sig. Svo byrjuðu æfingar. Við vorum látin lesa
texta úr leikritinu og svo var ráðið í hlutverk. Allir fengu einhver og sumir fleiri en tvö. Leikstjórarnir
voru þeir Ingi og Davíð. Já, já, nokkrar æfingar fóru í það að lesa leikritið og svo fórum við upp á svið
að leika. Það gekk svona la, la í fyrstu en eftir nokkrar æfingar fór þetta að renna saman, þökk sé
"kellingunum" í hópnum eins og við kölluðum þær. Það voru Haddý, Gulla og Gudda og það var þeirra
verk að fæða okkur og þær stunduðu það einnig að öskra á okkur þegar við fórum í körfubolta.. Svo
þegar leikritið fór að snrella saman fórum við að íhuga daga fyrir sýningar. Svo var ákveðið að hafa
generalprufu um miðjan mars. Við æfðum af fullum krafti þangað til og svo rann stóra stundin upp. Við
mættum í Aratungu tveimur stundum fyrir sýningu og það var byrjað að sminka og dressa sig og allir
voru alveg ga, ga afhræðslu fyrir sýningu. Og svo
var dregið frá sýningartjaldinu og maður hoppaði
inn á sviðið og byrjaði að leika og hvað var að
gerast? Sviðsskrekkurinn farinn og maður lék af
svoleiðis krafti að maður átti ekki til orð. Svo var
allt búið og við hneigðum okkur. Svona gekk
þetta líka næstu tvær sýningar. Allt heppnaðist
vel og í verðlaun fengum við krakkarnir í
leiklistinni að fara í bæinn að borða og í bíó á
kostnað leiklistardeildar.
Köttur út í mýri,
setti á sig stýri,
úti er ævintýri.
Á skólabekk í leikritinu
r
FISKBÚÐ
SUÐURLANDS
EYRAVEGI 59 n 98-22509
Biskupstungnamenn og aðrir Sunnlendingar!
Höfum nýjan og góðan fisk í boði daglega.
Keyrum af og til í sveitirnar með fisk til sölu
J
Litli - Bergþór 17