Litli Bergþór - 01.07.1992, Blaðsíða 28
Gönguleiðir í Brúarárskörð
BRÚARÁRSKÖRÐ eru talin hrikalegasta
gljúfur í Árnessýslu (samkvæmt bókinni
Landið Þitt ísland) og þau liggja milli
RAUÐAFELLS að vestan og
HÖGNHÖFÐA að austan. í þeim kemur
Brúaráin upp. Þarna má sjá vatnið fossa í
smásprænum beint út úr berginu ofan í
hyldjúpt gljúfrið, en til þess að sjá það vel
verður að ganga upp á LITLHÖFÐANN,
lágan höfða austan við skörðin, utan í
Högnhöfðanum.
Hér er ætlunin að lýsa í stuttu máli helstu
gönguleiðum í Brúarárskörð frá Miðhúsum
og Úthlíð.
Stysta leiðin, og jafnframt sú fallegasta, er
að ganga frá enda vegarins sem liggur
framhjá orlofshúsum
Verslunarmannafélags Reykjavíkur í
Miðhúsaskógi. Ekið er alveg inn að
HRÚTÁ, rúmlega 3 km leið. - Einnig má
aka u.þ.b. hálfa leið að bústöðunum, (þar
sem rafmagnslínan beygirtil vesturs), og
ganga þaðan eftir vegarslóða, sem liggur
inn Faxalautir upp að Hrúthaga við upptök
Hrútár. Ef það er gert missir maður
hinsvegar af göngunni meðfram Hrútánni,
sem er mjög falleg. - Afleggjarinn að
bústöðunum í Miðhúsaskógi er vestan við
fjárhúsin á Miðhúsum.
Ef ekið er alla leið inn að Hrútá, er gengið
til norðausturs meðfram Hrútánni um 700
m, þar til komið er fyrir upptökin. Þaðan
má taka strikið beint upp í Skörðin. Ekki
þarf að vaða neinar ár, því einnig er gengið
fyrir ofan upptök Fremri- og Innri- KÁLFÁA.
Þessar ár allar, Hrútá og báðar Kálfárnar,
eru tærar og kaldar bergvatnsár, sem
spretta þarna undan hrauninu í fallegum
lindum og eru töluvert vatnsmiklar þegar
þær falla í BRÚARÁ nokkru vestar. Tvær
girðingar eru á leiðinni, sú sem girðir af
land Verslunarmanna og svo
markagirðingin milli Úthlíðarog Miðhúsa.
Er fólk beðið um að nota stiga, sem á
girðingunum eru.
Um tveggja tíma gangur er inn að
Brúarárskörðum hvora leið frá Hrútá, og
ef gengið er upp á Litlhöfðann er ráðlegt
að áætla a.m.k. einn og hálfan tíma til
viðbótar. Ganga þarf dálítið inn eftir
höfðanum til að sjá vel ofaní gljúfrið og
hafa þar troðist stígar, sem vísa veginn.
Fallegt útsýni er af Litlhöfðanum yfir
sveitina, en til að sjá inn að Hlöðufelli og
Þórisjökli má ganga á STROKK, sem er
keilulaga tindur í miðjum Skörðunum. Af
Strokki sést mjög vel yfir upptök Brúarár,
en ekki sést til Langjökuls vegna þess að
Hlöðufell og hlíðar Högnhöfða skyggja á.
En fleira má skoða á leiðinni ef tími er
nægur. Vestasti hluti Miðhúsalands, milli
Hrútár, Brúarár og Fremri-Kálfár, heitir
HRÚTHAGI og þar stóð áður bærinn í
HRÚTÁRTUNGU í nokkur ár um aldamótin
síðustu. Enn má sjá húsatóttirnar vestan í
hraunjaðrinum, ef gengið er til vesturs frá
upptökum Hrútár, inn í Hrúthagann.
Bærinn var byggður á rústum sels, sem
Skálholtsstaður hafði þar á sínum tíma.
KÁLFÁRFOSS er frekar lítill en mjög snotur
foss í Fremri-Kálfá, þar sem hún fellur fram
af hraunjaðrinum við Kálfártjörn
(Fremritjarnir). Markagirðingin milli Úthlíðar
og Miðhúsa endar við tjörnina og eru
Gengið meðfram Hrútá.
Brúarárskörð vinstra megin í myndinni,
Högnhöfði fyrir miðri mynd
Litli - Bergþór 28