Litli Bergþór - 01.07.1992, Síða 29
aðeins um 100 metrar að fossinum frá
girðingunni. Er vel þess virði að taka á
sig þann smá krók. Fallegt er líka við
lindirnar, þar sem Kálfáin kemur upp,
rétt ofan við tjarnirnar. Þegar gengið er
fyrir þær og í átt að Skörðunum, er
komið á vegarslóða, sem fylgja má til
norðurs upp í Skörðin. Til suðurs
liggur vegaslóði þessi framhjá
KOLGRIMSHÓL, - áberandi hól, sem
gnæfir upp úr miðju hrauninu, - og
niður að Úthlíð. Einnig er hægt að
fylgja slóðanum til austurs frá
Skörðunum, meðfram Högnhöfða og þaðan
að norðurenda MIÐFELLS og heim að
Séð til suðvesturs af Strokki.
Vörðufell til hægri við sjóndeildarhring.
Úthlíð. Ekki er mælt með því að reyna að leggja
það á menn eða bíla að keyra þennan
hringveg, enda er það lítið fljótlegra en
að ganga hann. En það er víða fallegt
þarna í hrauninu, og ef fólk vill frekar
fylgja vegarslóða alla leið, er það góður
þriggja tíma gangur að ganga upp í
Brúarárskörð frá Úthlíð fram hjá
Kolgrímshól. Mun lengra er að ganga
veginn framhjá Miðfelli, en það er líka
mjög falleg leið. Að lokum er
göngufólki óskað góðrar ferðar, en það
jafnframt beðið um að ganga vel um
landið og valda ekki óþarfa ónæði í
sumarbústaðabyggðum.
Áð við Brúará í mynni Brúarárskarða.
G.S.
Litli - Bergþór 29