Litli Bergþór - 01.12.1995, Qupperneq 17
Gluggað í ársskýrslu
í byrjun nóvember var send út ársskýrsla
Biskupstungnahrepps fyrir árið 1994.
Rétt þykir að geta skýrslu þessarar hér og hafa um
hana nokkur orð.
I aðfararorðum oddvita segir svo:
„Allt frá árinu 1990 hafa tekjur sveitarfélagsins
farið lækkandi. Stærsti hluti útgjaldanna er lögbundinn
eða samningsbundinn og þegar tekjurnar lækka verður
minna fé til framkvæmda.
Fjárhagur sveitarsjóðs er erfiður vegna mikilla
framkvæmda á stuttum tíma. Á árinu var lokið við
byggingu 4 félagslegra íbúða í Kistuholti 14 og 16 í
Reykholti. Áfram var unnið að Vatnsveitunni og lagt að
Arnarholti, Kjaranstöðum, Bóli og Heiði. Gert var átak í
viðhaldi Aratungu, húsið sprungufyllt og málað að utan.
Unnið var að byggingu Slökkvistöðvarinnar og tókst að
koma bílunum þar inn fyrir áramót. Nokkrar
framkæmdir voru við götur og holræsi í Reykholti og
Laugarási. Hreppurinn neytti forkaupsréttar og keypti 4
ha. lands á Norðurbúnartúni á 2 millj. kr. Skatttekjur
sveitarfélagsins eru mjög lágar eða um 49,1 millj. kr. en
rekstur málaflokka, nettó er um 40,1 millj. kr. Skuldir
sveitarsjóðs án félagslegra íbúða nema samtals um 71,2
millj. kr. í árslok 1994. Ljóst er að beita þarf auknu
aðhaldi í rekstri og framkvæmdum ef vel á að fara í
fjármálum sveitarfélagsins.
Atvinnumál hafa verið mikið í umræðu hér sem
annarsstaðar. Nokkuð tímabundið atvinnuleysi hefur
verið viðvarandi á árinu. Rekstur Yleiningar hf. hefur
gengið illa og var starfsmönnum þar fækkað vegna
verkefnaskorts. Áfram hefur verið unnið í leit að nýjum
atvinnutækifærum innan Þróunarverkefnis uppsveitanna,
sem er samstarf hreppanna í atvinnumálum. Hugmyndin
að Sambyggð aldraðra í Laugarási er afrakstur þessa
starfs. Það mál er nú í biðstöðu af ýmsum ástæðum.
Samdráttur í landbúnaði heldur áfram og er sérstakt
áhyggjuefni hve mikill framleiðsluréttur í mjólk flyst burt
úr sveitarfélaginu."
Þegar flett er reikningum eru nokkur atriði sem
gera má að umræðuefni, og er þá einkum athyglivert
hvernig tölur breytast frá fjárhagsáætlun og yfir í
rauntölur. Þannig kemur í Ijós að skatttekjur að
frádregnum rekstri málaflokka voru áætlaðar 14,7
millj.kr. en urðu nær 9,6 milljónir.
Þetta skýrist ekki af minnkuðum tekjum því þær
standast nánast alveg á milli fjárhagsáætlunar og
rauntekna, en hins vegar fara almenn rekstrargjöld um 3
millj. kr fram úr áætlun og tekjur málaflokka skila nánast
2 millj. kr. minna inn en reiknað er með. Af þessu leiðir
að fé sem ráðstafað er umfram tekjur eftir greiðslu lána
eru nær 3,6 millj. kr. og er það greiðsluhalli
sveitarfélagsins á einu ári. Með fjárfestingum er
ráðstöfun umfram tekjur ársins 17,8 millj. Nokkra
athygli vekur að skatttekjur samkv. rauntölum og
fjárhagsáætlun eru nær sömu, þó kemur í ljós þegar nánar
er að gáð að útsvör eru 2 millj. kr hærri en áætlað er en
Pétur gluggar og gluggar í skýrslur.
fasteignaskattar 1 millj. kr. lægri. Þykirnokkuð undarlegt
hvernig fasteignir hafa rýrnað í sveitarfélaginu frá því að
áætlun var gerð og þar til tekjur voru innheimtar.
Breytingar á gjöldum til málaflokka frá fjárhagsáætlun til
rauntala eru nokkuð áberandi í yfirstjórn sveitarfélagsins.
Skeikar þar 1 milljón. Til brunamála og almannavarna
hefur verið varið 3,7 millj. kr. en áætlaðar voru 2.9. millj.
kr. Nokkuð minna virðist skeika á milli annarra
málaflokka. Gjöld vegna Aratungu fóru 2,5 millj. kr.
fram úr áætlun.
Heildarskuldir sveitarfélagsins með
félagsíbúðardeild eru tæpar 112 millj. kr. og skuldir á
hvern íbúa samkv. því 213 þús. Til samanburðar má geta
að í Reykjavrk eru skuldir á íbúa 120 þús.
I skýringum með reikningum kemur fram að
niðurfærsla óheimtra krafna er upp á 2,3 millj. kr. þó
ekki sé um endanlega afskrift að ræða þá mun töluvert af
Fasteignir
rýrna, skuldir
vaxa. Ljótt ef
satt er.
því fé vera tapað. Einnig
ljós að sveitarsjóður hefur
í ábyrgð gagnvart,
þriðja aðila vegn
verðtryggðra lána senf
um 15 millj. kr. í upphafi
Það virðist því vera nokkucf
hjá oddvita sem segir í inngangi að
peningarleg staða sveitarsjóðs sé erfið og
lítið fé verið til framkvæmda á þessu ári
ef greiða á um 10 millj. kr. í
afborganir af lánum en það er meira
heldur en allt fé sem varið var til
framkvæmda á árinu 1994.
P.S.
kemur í
engið
Litli - Bergþór 17