Litli Bergþór - 01.12.1996, Qupperneq 5
Hvað segirðu til?
Hér verða tínd til helstu tíðindi úr sveitinni frá því á
skerplu og fram á gormánuð.
Tíðarfar í sumar var að flestu leyti gott. Hlýindi og
næg væta í allt sumar gaf góða sprettu jarðargróðurs.
Slægja var komin á bestu tún um miðjan júní og náðu
sumir bændur töluverðu af heyjum í þeim mánuði og
flestir höfðu lokið mestum hluta fyrri sláttar fyrir miðjan
júlí, enda var góð heyskapartíð á þessum tíma. Heldur
varð vætusamara er á leið sumar og varð víða bleyta í
túnum til óþæginda. Ekki gerði góðan þurrk fyrr en eftir
miðjan ágúst, en hann entist ekki lengi og varð haustið
vætusamt. Heyfengur mun vera mikill, og er mestur hluti
hans í rúllum.
Dýraleitarmenn unnu tvö greni í vor. Annað var í
Haukadal, austanvert í Sandfelli innarlega. Þar náðust 5
yrðlingar og 1 fullorðið dýr. Hitt var svonefnt Kötugreni,
vestan við Miðfell í Úthlíðarhrauni. Þar náðu þeir 4
yrðlingum og 1 fullorðnu dýri.
Síðustu dagana í október snjóaði töluvert og dró í
skafla. Nokkuð af fé fennti en yfirleitt mun það hafa
fundist lifandi, en einn viðurkenndur graðhestur fórst í
skurði í þessum byl. Vikuna á eftir var frost nokkuð hart
og margar nætur milli 10 og 20 stig.
Heilsufar er talið hafa verið með besta móti í sumar,
hvort sem það er að þakka uppsögn heilsugæslulækna
eða ekki.
Leitir voru að mestu með hefðbundnum hætti. í
fyrsta safn var farið 7. september og réttað viku seinna.
Fremur var úrkomu- og vætusamt á fjöllum þessa viku og
olli það fjallmönnum erfiðleikum við að finna fé.
Tungnaréttir voru nú á laugardegi í fyrsta sinn. Var
það samkvæmt fyrirmælum í nýrri fjallskilasamþykkt
fyrir Ámessýslu austan Ölfusár, Sogs og Þingvallavatns.
Mæltist þessi breyting misjafnlega fyrir hjá
heimamönnum, en fólk mun hafa verið fleira í réttunum
en nokkru sinni fyrr. Veður var gott þennan dag og gekk
fjárrag vel, víða glatt á hjalla og að kvöldi var fjölmennur
og fjörugur réttardansleikur í Aratungu.
I eftirsafn var farið um síðustu helgi í september. í
tvo daga leituðu 6 tilkallaðir fjallmenn og 8
sjálfboðaliðar aðallega afréttinn sunnanverðan. Fengu
þeir dágott leitarveður og fundu nærri 130 kindur.
Um miðjan október fóm svo 8 í eftirleit og var
helmingur þeirra sjálfboðaliðar og jafnmargir karlar og
konur. Þau voru í viku, fengu allgott veður alla daga
nema einn og fundu yfir 20 kindur.
í október vom 3 kindur sóttar inn fyrir Sandá, og
skömmu síðar fór tveir menn á bflum á Bláfellsháls og
þaðan á snjósleðum í Þjófadali og sóttu þangað 3 kindur.
I báðum tilvikum voru þetta tvflembur úr
Hrunamannahreppi.
Dilkar voru fremur léttir í haust og er um kennt að
gróður hafi ekki verið nógu næringarríkur í sumar og
haust.
Margir ferðamenn komu hér einkum framan af sumri.
Fólk er flutt í nýtt íbúðarhús í Ásakoti og slík eru í
Stórbóndinn í Tungu atyrðir Ijósmyndara Litla-Bergþórs
jyrir að kunna illa til verka og vera fyrir þegar féð er
rekið inn í almenninginn.
byggingu í Gýgjarhólskoti og á Stóra-Fljóti, en það er
byggt vestur við veg þar sem áður var land Espiflatar.
I Kistuholti er búið að byggja eina bflageymslu og
önnur þreföld er í byggingu. Gróðurhús hafa verið í
byggingu í Heiðmörk, Friðheimum og á Árbakka.
Fjós til viðbótar því sem fyrir var hefur verið byggt í
vesturbænum á Vatnsleysu.
Á næstunni verður farið að búa Hlíðaveg, frá
vegamótum Reykjavegar að Andalæk, undir varanlegt
slitlag.
Ný heimreið hefur verið lögð að Skálholti, og er nú
farið af Skálholtsvegi þar sem gamli bændaskólavegurinn
var, og nýir vegaskurðir hafa verið grafnir fjær veginum
en hinir fyrri í mýrinni fyrir austan Skálholtsklif.
Hollendingar hafa verið með garðyrkjustöðina á
Stöllum á leigu og framleitt blóm til útflutnings en þau
eru ræktuð af innfluttum græðlingum. Þessi blóm þurfa
hóflegan hita og langa birtu.
Rauðir hælar hafa í haust skreytt vegkanta frá enda
olíumalarinnar við Fellsrana og allt upp fyrir Heiði.
Munu þeir vera fyrirboðar þess að þennan vegarkafla á
að endurbyggja í vetur.
Borað var eftir heitu vatni í Kjarnholtum í haust og
kom upp vatn, sem mun nægja til heimanota á öllum
þremur býlunum þar. Líklegt er talið að
fá megi meira og heitara vatn^
meiri borun.
Olíumöl hefur verið
lögð á bifreiðastæði og
hellur á gangstéttar hjá Hótel
Geysi.
Annir eru í Yleiningu um þessar mundir
og er unnið stöðugt frá sunnudagskvöldi fram
á laugardagseftirmiðdag.
Ragnhildur Petra Helgadóttir frá
Rauðaskógi lést af slysförum í september.
Hún var jörðuð í Bræðratungu.
A.K
Hvernig var með öll
verðlaunin?
Litli - Bergþór 5