Litli Bergþór - 01.12.1996, Page 6
Hreppsnefndarfréttir
Hreppsráðsfundur 20. ágúst 1996.
Fundinn sátu Gísli Einarsson, Guðmundur
Ingólfsson og Páll M. Skúlason.
Fundargerð skólanefndar. Skólastjóri kom á
fundinn og skýrði ákv. þætti hennar. Ákveðið að
oddviti ræði við skólabílstjóra um tilhögun aksturs.
Erindi Njarðar Jónssonar um samþykki
teikninga og beiðni um byggingarleyfi fyrir söluskála
við Gullfoss. Erindinu vísað til bygginganefndar.
Bréf Samb. ísl. sveitarfélaga 9. ágúst um
tryggingar grunnskólakennara. Ákveðið að oddviti
kynni sér málið nánar og kaupi nauðsynlegar
tryggingar.
Erindi „Heimilis og skóla“ dags. 28. júní um
bækling fyrir skólanefndir og foreldraráð. Ákveðið
að panta 6 eintök fyrir skólanefnd og foreldraráð.
Bréf Skipulags ríkisins dags. 25. júlí.
Stækkun Hagavatns, mat á umhverfisáhrifum,
frumathugun. Niðurstöður frumathugunar og
úrskurður skipulagsstjóra ríkisins liggja frammi á
hreppsskrifstofu.
Erindi umhverfisráðuneytis dags. 18. júlí um
bæklinga ráðuneytisins um „heimajarðgerð". Vísað
til umhverfisnefndar.
Erindi SASS dags. 14. ágúst 1996.
Rekstrarsamningur sveitarfélaga við Skólaskrifstofu
Suðurlands vegna áranna 1997-1999. Vísað til
skólanefndar og leikskólanefndar.
Erindi Félagsmálaráðuneytis 19. júlí um
jöfnunarsjóðsframlög við yfirfærslu alls
grunnskólakostnaðar frá ríki til sveitarfélaga. Lagt
fram ásamt reglugerð.
Bréf Jöfnunarsjóðs 21. júlí varðandi
hámarksstærð á íþróttahúsi sem skólamannvirki
fyrir Biskupstungnahrepp m.t.t. kostnaðarþátttöku
Jöfnunarsjóðs.
Oddviti gerði í stórum dráttum grein fyrir
afkomu ferðaþjónustustofnana. Farfuglaheimilið
virðist koma vel út. Aukning er í veitingum í
Aratungu en aðsókn í sundlaugina hefur minnkað
allmikið.
Unglingavinna hefur gegnið vel. Viðgerð á
réttunum stendur yfir. Lokun skurðar í Reykholti
stendur fyrir dyrum.
Vandamál eru með vatnsþrýsting í
sumarbústaðahverfi í Hrísholti. Oddvita falið að
finna bestu og hagkvæmustu leið til að leysa þann
vanda sem þarna er uppi.
Hreppsráðsfundur 10. sept. 1996.
Bréf oddvita til sveitarstjórna í uppsveitum
Árnessýslu um samstarf í ferðamálum ásamt
fylgigögnum og fundargerð frá 11. júlí kynnt.
Utskrift úr fundargerð hreppsnefndar Gnúpverja,
svohljóðandi:
Sameiningarmál. Varðandi erindi frá oddvita
Biskupstungnahrepps um hugsanlega sameiningu í
uppsveitum Árnessýslu, þá tekur hreppsnefnd
jákvætt undir það mál og telur að stefna beri að
fundi í október, sem búið verði að undirbúa á þann
hátt að afla góðra upplýsinga um kosti og galla
sameiningar og setja niður á blað sundurliðaðar
upplýsingarfyrir hverja sveit um skuldir og tekjur pr.
íbúa, kostnað við yfirstjórn í hverju sveitarfélagi og
annað það sem máli skiptir við hugsanlega
sameiningu.
Samstarf í ferðamálum: Bréf frá oddvita
Biskupstungnahrepps þar sem hann vill kanna
áhuga sveitarstjórnarmanna á samstarfi í
ferðamálum í uppsveitunum. Leggur hann fram þá
hugmynd að ráða sameiginlegan ferðamálafulltrúa
frá næstu áramótum. Hreppsnefnd tekur jákvætt í
þetta mál, en frestar afgreiðslu á því að sinni.
Útskriftir úr fundargerð Laugardalshrepps.
Svohljóðandi: Bókun hreppsnefndar
Laugardalshrepps frá 3.júlí 1996. „Samþykkt að
taka jákvætt í tillögu hreppsnefndar
Biskupstungnahrepps frá 11. júní 1996 um
hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna í
uppsveitum Árnessýsiu."
Bókun hreppsnefndar Laugardalshrepps frá
25. júlí 1996 . „Bréf dags.11. júlí 1996 frá oddvita
Biskupstungnahrepps um áhuga
sveitarstjórnarmanna á nánara samstarfi í
ferðamálum með ráðningu ferðamálafulltrúa.
Hreppsnefnd Laugardalshrepps fagnar þessari
hugmynd og mun taka þátt í skoðun á samstarfi."
Erindi oddvita Þingvallahrepps 26. júlí. Vill
taka þátt í samstarfi.
I Samþ. hreppsnefndar Grafningshrepps,
svohljóðandi: Á fundi hreppsnefndar
Grafningshrepps dags. 12. ágúst 1996 vartekið
fyrir erindi yðar dags. 11. júlí 1996 um áhuga
sveitarstjórnarmanna fyrir nánara samstarfi í
ferðamálum.
„Hreppsnefnd Grafningshrepps samþykkti að
taka þátt í að ráða sameiginlega ferðamálafulltrúa
fyrir uppsveitir Árnessýslu á grundvelli þeirra draga
er með erindinu fylgdi og með eftirtöldum skilyrðum.
a) Að víðtæk samstaða náist um verkefnið
meðal uppsveitanna.
b) Að kostnaðarhlutdeild taki mið af íbúafjölda
viðkomandi sveitarfélaga.
c) Að gert verði ráð fyrir samningi um verkefnið
til eins árs í senn. “
Samþ. hreppsnefndar Grímsneshrepps,
svohljóðandi: Áfundi hreppsnefndar
Grímsneshrepps þann 13. ágústs.l. vartekið fyrir
erindi Biskupstungnahrepps og eftirfarandi bókun
gerð:
„Bréf Biskupstungnahrepps dags. 11. júní 1996,
þar sem óskað er eftir könnun meðal
sveitarstjórnarmanna um hugsanlega sameiningu
sveitarfélaganna í uppsveitum Árnessýslu.
Hreppsnefnd lýsir sig reiðubúna til umræðna og
tilnefnir Böðvar Pálsson og Kjartan Helgason í
viðræðunefnd. “
„Bréf Biskupstungnahrepps: Bréf
Biskupstungnahrepps um samstarf uppsveita að
ferðamálum. Hreppsnefnd tekur jákvætt í erindið.
Samþ. hreppsnefndar Hrunamanna 19. júní
svohljóðandi: Á fundi hreppsnefndar
Litli - Bergþór 6