Litli Bergþór - 01.12.1996, Síða 7
Hreppsnefndarfréttir
Hrunamannahrepps 19. júní 1996 var gerð
eftirfarandi bókun:
„Lagt fram bréf frá hreppsnefnd
Biskupstungnahrepps dags. 11. júní 1996 þar sem
leitað er eftir vilja sveitarstjórna í uppsveitum
Árnessýslu að gert verði svæðaskipulag með
sameiningu sveitarfélaga í huga.
Hreppsnefnd líst vel á hugmyndina og er
reiðubúin til viðræðna um málið.
Fundargerðir Leikskólanefndar 13. og 22.
ágúst.
Samþykkt að leggja til að gert verði ráð fyrir
kr. 100.000.- til úrbóta í salernismálum Leikskólans,
enda hljóðar gróf kostnaðaráætlun upp á ríflega kr.
90.000.-.
Tillaga að gjaldskrá fyrir leikskólavist er svona:
Heilirdagar 5 daga kr.17.500,-, 4 = kr.14,000,-,
3 = kr.10,800,-.
Fyrir hádegi 5 daga kr. 6.700,- 4 = kr. 5,300,-,
3 = kr. 4,100,-.
Eftir hádegi 5 daga kr. 7.700,-, 4 = kr. 6,600,-,
3 = kr. 5,200,-.
Hreppsráð er sammála um að ræða þurfi
framtíðarskipan leikskóla í sveitarfélaginu vegna
aukins fjölda barna og húsnæðis, sem er orðið of
lítið.
Kaupsamningur vegna Haukadals 2. Lagt til
að hreppurinn neyti ekki forkaupsréttar.
Afsal fyrir sumarbústað. Kaupandi Kristín
Sigurðardóttir, seljandi Ólafur Karvel Pálsson. Lagt
til að ekki verði neytt forkaupsréttar.
Bréf Jóns Rafns Guðmundssonar. Samþykkt
að leggja til að fá hann til að yfirfara tryggingamál
hreppsins.
Bréf foreldra og kennarafélags
Reykholtsskóla. Lagt til að vísa erindinu til
fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.
Erindi Nemendasambands M.L. Samþykkt að
leggja til að veita nemendasambandinu kr. 20.000.-
til ritunar sögu skólans.
Umsókn um litlu íbúðina við Leikskólann.
Gísli Einarsson og Ingibjörg Jónsdóttir sækja um að
taka íbúðina á leigu. Gísli vék af fundinum meðan
málið var rætt. Ákveðið að leggja til, að leigja þeim
hjónum íbúðina á sambærilegum kjörum og íbúðin
hefur verið leigð á og greiði þau leigu að upphæð
kr. 6.000.- á mánuði.
Hreppsráð telur þörf á að taka húsnæðismál og
leigukjör til umræðu.
Skipulag sumarhúss í landi Tortu.
Deiliskipulag sumarbústaðahverfis í landi Tortu
hefur legið frammi í lögbundinn tíma og engar
athugasemdir hafa borist. Lagt til að
skipulagsuppdrátturinn verði samþykktur.
Tillaga að staðsetningu tengihúss Pósts og
Síma í Laugarási. Samþykkt að tillagan verði unnin
áfram.
Vegur við austurenda Iðubrúar. Oddvita falið
að fylgja málinu eftir.
Lóðamál í Laugarási ( hestahald og lóðir.) Páli
falið að gera tillögur að bókunum.
Hreppsnefndarfundur 17. 9.1996.
Allir nefndarmenn mættir nema Kjartan
Sveinsson. í hans stað mætti Ágústa Ólafsdóttir.
Hreppsnefnd beinir því til Gunnlaugs
Skúlasonar Brekkugerði, að hann fjarlægi girðingar
og hesthúskofa, sem hann hefur sett upp vestan og
sunnan íbúðarhússins að Launrétt I.
Erindi frá Steinunni K. Pétursdóttur og Ágústi
Sæland þar sem þau sækja um að breyta nafninu á
Stóra-Fljóti í Brekku-Fljót, en þau eru að kaupa
gamla húsið af Stíg Sæland sem hefur byggt sér
nýtt íbúðarhús og ætlar að flytja nafnið Stóra-Fljót á
það.
Fundargerð Rekstrarnefndar 16. sept. þar
leggur Rekstrarnefnd til að sundlaug verði lokuð
mánudaga og föstudaga, aðrir dagar eru eins og
vetraropnun hefur verið. All miklar umræður urðu
um fundargerðina. Sveinn Sæland er á móti að
opnunartíma verði breytt.
Erindi Sýslumannsins á Selfossi, þar sem
hann óskar eftir umsögn sveitarstjórnar varðandi
umsókn um vínveitingaleyfi fyrir Gistiheimilið á
Geysi. Samþykkt að fenginni jákvæðri umsögn
félagsmálanefndar.
Bréf Póst og símamálastofnunar, sem sækir
um leyfi til að reisa tækjahús fyrir útstöð og
tækjabúnað í Laugarási í Bisk. Staðsetning hússins
er samkvæmt tillögu Péturs Jónssonar arkitekts.
Bréf Samtaka fámennra skóla kynnt.
Bókasafn U.M.F. Bisk. hefur verið flutt í
skólann, en samningur hefur ekki verið gerður um
sameiningu skólabókasafns Bisk. og
ungmennafélagsbókasafns. Hreppsráði var falið að
leita eftir fundi með stjórn U.M.F. Bisk. þar sem
gengið yrði frá varðveislu og rekstri bókasafns og
sameina það undir einn hatt.
Sameiningarmál uppsveita, átta hreppar í
Árnessýslu. Hreppsráði falið að gera tillögu að
dagskrá, fyrir næsta hreppsnefndarfund, að
sameiginlegum fundi sveitarstjórna í uppsveitunum,
þar sem svæðisskipulag að hugsanlegri sameiningu
yrði rædd.
íþróttahús. Samþykkt var að sækja um
stofnframlag til byggingar íþróttahúss úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Samþykkt að setja upp brunahana við
Yleiningu og slökkviliðsstjóra falið að gera
kostnaðaráætlun.
Fundur í hreppsráði 1. október 1996.
Erindi Myndbæjar. Beiðni um styrk til jgerðar
fræðslumyndar um eldvirkni og veðurvá á íslandi.
Ákveðið að leggja til að erindinu verði hafnað að
sinni.
Erindi Yleiningar um að fá leigðan til eins árs
austurenda slökkvistöðvar. Fyrirhugað er að nota
húsnæðið sem geymslu. Hreppsráð leggur til að
Yleiningu verði leigt húsnæðið enda takist
samningar um leigu. Leigutími verði 1 ár.
Bréf Braga Kristjánssonar dags. 21. sept. um
leyfi til flutninga á nautgripum á milli jarðanna
Litli - Bergþór 7