Litli Bergþór - 01.12.1996, Page 8
Hreppsnefndarfréttir
Jaðars II í Hrunamannahreppi og Kjóastaða II í
Biskupstungnahreppi. Hreppsráð gerir ekki
athugasemdir við flutning nautgripa og heys. Vegna
beiðni um leyfi til að hafa fáeinar kindur til
heimilisnota gerir hreppsráð ekki athugasemdir en
vísar til umsagnar dýralækna og sauðfjárveikivarna.
Lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og
markmiðum fyrsta fundar uppsveitahreppa um
svæðaskipulag. Páli falið að vinna tillögu að
fundarboði.
í upphafi fundar skoðuðu hreppsráðsmenn
nýju slökkvistöðina og mæla með því að steypt verði
þar gólf í haust.
Hreppsnefndarfundur 8.10.1996.
Allir nefndarmenn mættir nema Guðmundur
Ingólfsson en Ágústa Ólafsdóttir kom í hans stað.
Fundargerð hreppsráðs f. október 1996.
V/4. liðar, þar sem stendur Yleining á að vera
Límtré. Límtré tæki geymsluna á leigu til eins árs f.
kr. 480.000,-
Lögð fram tillaga að fundarboði fyrir fyrsta
fund fulltrúa uppsveitahreppa um sameiningarmál
ásamt minnisblaði um fyrirkomulag og markmið
fundarins. Samþykkt að senda út fundarboðið og
minnisblaðið og stefnt að fundi 1. nóvember kl.
14.00.
Bréf frá Bryndísi Malmo Bjarnadóttur,
Kistuholti 14b. Bryndís fer fram á að kaup hennar á
félagslegri eignaríbúð hennar gangi til baka.
Samþykkt að auglýsa íbúðina til sölu.
Hreppsráðsfundur 5. nóvember 1996.
Bréf foreldrafélags leikskólans, þar sem farið
er fram á að salerni verði sett á efstu hæð
leikskólans og að sett verði vegrið eða steinar við
bílaplan fyrirframan leikskólann. Fram kom að verið
er að vinna í vegriðsmálinu. Um salernismálið
vísast til fundargerðar hreppsráðs 10. sept. 1996.
Bréf leikskólastjóra, þar sem þess er farið á leit
að ráðinn verði tónmenntakennari að leikskólanum.
Samþykkt að leggja til að veita leyfi til áramóta í
tilraunaskyni.
Bréf Ástvaldar Óskarssonar, þar sem óskað er
samvinnu við hreppinn til að fá að endurbæta veg
frá Bláfellshálsi að Langjökli. Hreppsráð leggurtil
að samþykkt verði að lýsa áhuga
Biskupstungnahrepps á því að umræddur vegur eða
slóði verði lagður og að hreppurinn muni beita sér
fyrir að leyfi fáist fyrir lagningu hans.
Bréf Sveins Skúlasonar. Samþykkt er að
leggja til að verða við beiðni um að sameining
Bræðratungu og Lambhúskots fari fram.
Samþykktir hreppsnefndar Skeiðahrepps
svohljóðandi:
a) Efni: Erindi Hreppsnefndar
Biskupstungnahrepps um sameiningu sveitarfélaga í
uppsveitum Árnessýslu. Erindið var lagt fram til
kynningar og umhugsunar fyrir hreppsnefnd
Skeiðahrepps 26. júní s.l. 15. okt. s.l. var erindið
síðan rætt í hreppsnefnd Skeiðahrepps og
eftirfarandi var þá bókað: Erindi um
sameiningarmál frá hreppsnefnd Biskupstungna.
Hreppsnefnd telur eðlilegt að fylgjast með málinu
en er alls ekki með því að gefa þá yfirlýsingu að allir
meðlimir nefndarinnar líti á þetta sem
hagkvæmasta sameiningarkostinn.
b) Efni: Ferðamálafulltrúi.
Erindi frá hreppsnefnd Biskupstungna um
sameiginlegan ferðamálafulltrúa fyrir uppsveitirnar.
Samþykkt að taka þátt í viðræðum um þetta mál.
Bréf SASS um áætlaðan meðalkostnað vegna
grunnskólanemanda sem er kr. 243.000,- á ári.
Deiliskipulag í Þjófadölum, tillaga gerð að
beiðni Ferðafélags íslands. Lagt til að tillagan verði
send Skipulagsnefnd miðhálendis íslands til
umfjöllunar.
Hreppsnefndarfundur 12. nóv.1996.
Fundargerð hreppsráðs 5. nóvember 1996.
Rædd og samþykkt.
Fundargerð Laugaráshéraðs 24. otkóber
1996. v/4. liðar. Yleiningarhúsið hefur verið leigt
kennara við Reykholtsskóla fyrir kr. 15.000 á
mánuði. Sveitarsjóður ber því mismuninn kr.
10.000 á mánuði.
Uppgjör v/íbúðarinnar Kistuholt 3. Samþykkt
að auglýsa íbúðina á ný þar sem enginn umsókn
barst við auglýsingu í sumar.
Samningur um Bókasafn Biskupstungna.
Lagður var fram samningur um Bókasafn
Biskupstungna og skólasafns Reykholtsskóla sem
felur í sér sameiningu og samstarf safnanna.
Hreppsnefnd samþykkir samninginn og veitir
oddvita umboð til að undirrita hann. Kosnir voru í
stjórn safnsins Bjarni Kristinsson og Pétur
Skarphéðinsson. Varamenn;
Ólafur Stefánsson og
Geirþrúður
Sighvatsdóttir.
íslenskt
dagsverk '97. Bréf
dags. 1. nóv. '96,
kynnt. Félag
framhaldskóla,
nemendur o.fl.
námsmannasamtök bjóða fram
til starfa námsmenn 13. mars 1997 fyrir
kr. 1997 dagsverkið. Samþykkt að kaupa
3 dagsverk.
Tilnefndir voru í viðræðunefnd
um sameiningu sveitarfélaga. Af K-
lista Svavar Sveinsson, vm. Kjartan
Sveinsson. Af H-lista Páll M.
Skúlason, vm. Sveinn A. Sæland.
Fjármálaráðstefna sveitarfélaga
20. - 21. nóvember '96. Lögð fram
dagskrá.
Bréf U.M.F. Bisk. varðandi byggingu
íþróttahúss. Vilja fá fréttir af málinu.
Sáttamenn voru kjörnir Ólöf Fríða Gísladóttir og
Arnór Karlsson.
Ég heimta aðfá verðlaunamerki
Biskupstungna áforsíðu áður en
hreppurinn verður lagður niður.
Þetta sem Palli Skúla teiknaði um
árið.
Litli - Bergþór 8
Tekið saman af D.K.