Litli Bergþór - 01.12.1996, Qupperneq 12
Mannréttindi
Höfundur:
Inga Dóra Pétursdóttir
/ þessari ritgerð ætla ég aðfjalla örlítið um uppruna og sögu mannréttinda almennt. Sagt verðurfrá
mannréttindum á Islandi og hvernig þessum málum er háttað útí heimi.
I lokin fer ég nokkrum orðum um brot á mannréttindum og hvernig hœgt er að berjast gegn þeim.
Þetta er þó engan veginn tœmandi lýsing á mannréttindum heldur aðeins lauslegt ágrip.
MEGINMÁL
Uppruni og saga mannréttinda.
Á 18. öld var Frakkland fyrirmynd allra helstu
þjóða heims. Frakkar voru fremstir á sviði
bókmennta, lista og vísinda og hvergi virtist
konungsvaldið styrkara og öflugra en þar.
En þetta var aðeins ásýnd Frakklands.
Utanaðkomandi þjóðir vissu ekki um verkamennina
sem stofnuðu verkalýðsfélög til að krefjast
mannsæmandi launa, bændurna sem voru orðnir
langþreyttir á að vinna á annarra manna löndum án
þess að fá krónu fyrir eða menntuðu borgarana sem
fengu ekki menntun sína metna sem skyldi.
Nei, þetta vissu ekki aðrar þjóðir um enda vissi
aðallinn í Frakklandi tæpast um þessa óánægju því
hann var svo upptekinn af að skemmta sér með
konungnum.
Þegar lágstéttirnar höfðu loksins fengið nóg,
sameinuðust þær og tóku að berjast fyrir réttindum
sínum. Sú barátta náði hámarki þegar þær réðust á
Bastilluna, gamalt virki.
Árásin á Bastilluna var táknræn, því virkið var
þekkt fyrir að hýsa fanga sem hvorki höfðu fengið
réttarhöld né dóm.
Þar sem konungurinn hafði eytt svo miklu fé í
skemmtanir og bruðl, sá hann ekki annað ráð en að
láta undan múgnum og koma á lýðræði.
Fyrsta verk almúgans á þingi var að tryggja
mannréttindi öllum til handa.
Því gerðist það 26. ágúst 1789 að fyrsta
mannréttindayfirlýsing í heimi var samþykkt.
Mannréttindaákvæði.
í mannréttindasáttmálanum sem franska
þjóðþingið samþykkti voru nefnd þau réttindi sem
allir menn skyldu njóta :
MANNFRELSI: En samkvæmt því var ekki hægt
að hneppa menn í fangelsi án réttarhalds.
SKOÐANAFRELSI: í því var fólgið að menn
skyldu búa við málfrelsi, prentfrelsi og trúfrelsi og
enginn skyldi þola miska þess vegna.
EIGNARÉTTURINN LÝSTUR FRIÐHELGUR: Að
fyrir missi eigna skyldu goldnar bætur.
Að lokum „allt vald kemur frá fólkinu" og „allir
menn hafa rétt til að veita kúgun mótspyrnu”.
Við gerð þessara laga komu fyrst fram hugmyndir
um kjörorðin „frelsi, jafnrétti og bræðralag” sem
Frakkar státa enn af.
HVER ERU LÖGBUNDIN
MANNRÉTTINDI Á ÍSLANDI?
Árið 1966 settu S.Þ. fram alþjóðlegan
mannréttindasáttmála, og var takmarkið að fá allar
þjóðir heims til að undirrita hann.
Því miður tókst það ekki alveg en ísland er aðili
að þessum sáttmála og hefur því sömu
mannréttindalög og flestar aðrar þjóðir.
ÞETTA ERU HELSTU ÁKVÆÐI í S.Þ.
SÁTTMÁLANUM.
SKOÐANAFRELSI
* persónufrelsi
* prentfrelsi
* félagafrelsi
* fundafrelsi
* atvinnufrelsi
EIGNARÉTTUR
* friðhelgi heimilis
* friðhelgi eignarréttar
* framfærsluréttur
HÉR ÆTLA ÉG AÐ ÚTSKÝRA TVENNT AF
ÞESSU:
1. Trúfrelsi - merkir í fyrsta lagi að hverjum og
einum er heimilt, að iðka þau trúarbrögð sem
sannfæring hans býður eða láta öll trúarbrögð
afskiptalaus.
Óheimilt er að gera manni að greiða persónuleg
gjöld til annarrar guðsdýrkunar en þeirrar sem hann
sjálfur aðhyllist.
Enginn má missa nein borgarleg eða þjóðleg
réttindi vegna trúarbragða sinna. Samkvæmt þessu
er bannað að mismuna mönnum vegna
trúarskoðana og skiptir engu máli hver trúarbrögð
manns eru eða hvort hann er í nokkru trúfélagi.
2. Fundafrelsi - merkir rétt manna til að safnast
Litli - Bergþór 12