Litli Bergþór - 01.12.1996, Síða 15
sveitirnar og eyðileggja bæi og land var fólk orðið
alveg ráðþrota og byrjaði að flýja til vestari sveita.
En þegar eldgosinu lauk árið 1784 þann 8. febrúar
höfðu 18 bæir orðið undir hrauni eða brunnið og
gífurlega mikið beytiland farið undir hraun eða
eyðilagst vegna ösku og eiturefna. Næstu þrjú ár
dóu í Móðuharðindunum rúmlega 14400 manns,
28000 hross, 11000 nautgripir og 190000 sauðfjár
eða 72% hrossa, 53% nautgripa og 83% sauðfjár
en hægt er að rekja dauðsföllin að stórum hluta til
Skaftárelda.
Þegar fréttin af eldgosinu barst til Danmerkur
byrjaði stjórnin að safna fé og matvælum. Skip var
sent með matvæli frá Danmörku með Hans von
Levetzow síðar stiftamtmann á íslandi og Magnús
Stephensen innanborðs. Þeir áttu að gefa skýrslu
um eldgosið en skipið hraktist aftur til Noregs.
Matvælin nýttust aldrei eins og þau áttu að nýtast,
vegna þess að illa gekk að dreifaþeim vegna
hestaeklu og það var miklu fleira fólk í nauð en
haldið var.
Hraunið nú á dögum.
Hraunið var og er mjög þykkt og úfið með
afbrigðum, svo að það er mjög erfitt yfirferðar hvort
sem er um að ræða mann eða skepnu. Á láglendinu
hefur Skaftá runnið yfir hraunið að ofanverðu og að
vestanverðu og borið í það sand og leir, sem hefur
slétt hraunið mikið. Er þar mikinn gróður að sjá
núna. En annars er langmestur hluti hraunsins
þakinn miklum grámosabreiðum á láglendi sem á
hálendi, en mosinn gerir það enn torfærara, ekki
síst þar sem bruninn undir mosanum er víða laus
svo að hvarvetna brotnar hann undan fæti. Vegur
var ruddur yfir Eldhraunið ytra á árunum 1909-1910
en núverandi vegur var ruddur á árunum 1956-
1969. Nokkrir troðningar liggja yfir hraunið á
afréttinum og bílaslóð var rudd yfir það árið 1964 en
hún liggur frá Hnútu yfir í Blágil og er óslétt og
seinfarin.
Lokaorð.
í þessari ritgerð hef ég reynt að segja frá
Skaftáreldum eins ýtarlega og ég get. Hvað þeir
höfðu mikil áhrif á fólksfækkun, á skepnurnar og á
búsetu fólks í landinu. En fólks fjöldi var ekki orðinn
eðlilegur fyrr en um árið 1800.
Heimildaskrá:
Árni Daníel Júlíusson og Jón Ólafur ísberg. 1991.
íslenskur Söguatlas. 1 bindi. Iðunn, Reykjavík.
Ari Trausti Guðmundsson. 1983. Eldvirkni á
íslandi í 10.000 ár. Vaka-Helgafell.
Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og
Páll Líndal. 1982. Landið þitt ísland. Bindi 3 og 4. L-
R og S-T. Örn og Örlygur HF.
Helgi Magnússon, Jón Jónsson og Sigurður
Þórarinsson. 1983. Árbók Ferðafélags íslands.
Jón Helgason. 1961. Öldin átjánda. Iðunn,
Reykjavík.
Skemmtilegar staðreyndir um TO Y OTA
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
Mest seldi bíllinn
á íslandi árið 1990.
á íslandi árið 1991.
á íslandi árið 1992.
á íslandi árið 1993.
á íslandi árið 1994.
á íslandi árið 1995.
á íslandi árið 1996.
<sg> TOYOTA
4821416
Tdkn um gæði
4821655
Litli - Bergþór 15