Litli Bergþór - 01.12.1996, Blaðsíða 17
Margt bendir þó til að viðhald dráttarvéla fari
batnandi til sveita, en einnig hafa framleiðendur
komið meira á móts við notendur í sambandi við
þægindi og öryggi dráttarvéla.
Þegar keyptar eru nýjar vélar eða þeim er breytt er
nauðsynlegt að hafa nokkur vinnufræðileg atriði í
huga.
- Við hvað er vinnuvélin notuð?
- Á hverskonar undirlagi(landi) er hún notuð?
- Hversu oft þarf stjórnandinn að fara upp í hana
og af henni?
- Hvert er hlutfall á milli þess vinnutíma sem ekið
er áfram og afturábak ?
- Hvert er hlutfallið á milli þess vinnutíma sem ekið
er og þess tíma sem vélin er lestuð og losuð?
- Er vinnurými stjórnandans nægilegt?
- Er yfirsýn yfir vinnusvæðið góð?
- Hvernig er veðurfar þar sem vélin er notuð?
- Hvernig er lýsing á vinnusvæðinu?
- Eiga hreyfihamlaðir að nota vinnuvélina?
Óvarkárni og óöruggt umhverfi valda 90% slysa.
Það má aldrei fjarlægja öryggishlífar meðan á
notkun tækisins stendur. Þegar hávaði fer yfir 80
desibel verður að nota heyrnaskjól eða eitthvað
annað sem deyfir hljóð. Ef hljóðkútur dráttarvélar er
orðinn lélegur eða ónýtur á að skipta um hann sem
fyrst. Ökumaður undir stýri dráttarvélar þarf að
athuga, að þegar dráttarvél er keyrð í halla þarf hann
að hafa í huga að á flestum dráttarvélum er
framöxullinn festur með einum bolta á miðjum
öxlinum. Þetta virkar þá eins og eitt hjól væri að
framan, því skal ekki keyra dráttarvél í mjög miklum
hliðarhalla. Einnig er gott að athuga að ef dráttarvél
er keyrð með þungum aftanívagni sem er á tveimur
öxlum þá er hætta á því að vagninn ýti á
dráttarvélina svo hún velti. Aka þarf niður brekkur í
lágum gír ef verið er með aftanívagn. Ef tittur er
notaður til að tengja tengivagn aftan í dráttarvél skal
vera splitti á tittinum svo öruggt sé að hann detti ekki
úr. Þegar mikill þungi er settur aftan í dráttarvél á að
setja þyngdarklossa á að framan, til þess að
beygjunarhæfileikar dráttarvélarinnar minnki ekki.
Þegar vinnuslys verða dregur það verulega úr
framleiðsluhraða og gæði framleiðslunnar minnka,
þegar minna þjálfað starfsfólk kemur í stað þess/
þeirra sem slasast. Allt veldur þetta auknum
framleiðslukostnaði. Það er því augljóst að
framleiðni og öryggi á vinnustað fara saman. Því er
hægt að fækka vinnuslysum ef vel er gætt að öllum
öryggisatriðum og þeim fylgt eftir. Öryggi á
vinnustöðum er ómissandi, því slysin gera ekki boð
á undan sér. Því er nauðsynlegt að gæta vel að
öryggisatriðum og laga hluti strax eða taka þá úr
umferð þegar þeir bila, en vera ekki að tefla í neina
tvísýnu.
HEIMILDIR:
- Frumnámskeið frá Vinnueftirliti Ríkisins.
- Kennslubók fyrir námskeið í öryggi á vinnustað
gefið út af
Vinnueftirliti Ríkisins.
- Ársskýsla Vinnueftirlits Ríkisins frá árinu 1995.
- Sunnlenska fréttablaðið.
SET ehf. Eyravegur 41-45, 800 Selfoss, sími 482 2700
Plast vatnsrör
Fullkomin tækni
við framleiðslu á
plaströrum
Litli - Bergþór 17